forsíða  félagið  myndir  lausir tímar  verðskrá  börn og unglingar  yonex  tenglar  hafa samband  

æfingatafla  skólabadminton  6 - 8 ára  9 - 12 ára  13 - 16 ára  framhaldsskólatími  keppnishópur unglinga

frístundakort

rig

 

 

Skólabadminton

TBR er í samstarfi við 10 grunnskóla í Reykjavík. Félagið býður öllum börnum í 4. bekk í þessum skólum að koma og æfa frítt í eina önn, eða 5 skólar á hvorri önn. Öll börnin fá gefins spaða frá félaginu. Skólarnir sem um ræðir eru: Austurbæjarskóli, Álftamýrarskóli, Ártúnsskóli, Breiðagerðisskóli, Fossvogsskóli, Háteigsskóli, Hvassaleitisskóli, Langholtsskóli, Laugarnesskóli og Vogaskóli.

Þetta samstarf er hluti af útbreiðslustarfsemi TBR og hafa margir af bestu badmintonspilurum félagsins byrjað sinn badmintonferil í skólabadmintoninu. Börnunum eru kynnt öll helstu atriði íþróttarinnar og er það markmiðið að þau kunni reglurnar og geti spilað sín á milli eftir reglunum án teljandi aðstoðar. Í lok annar er svo haldið mót (Jólaskólamót/Vorskólamót) þar sem börnin fá að etja kappi gegn börnum úr öðrum skólum. Allir geta verið með og allir fá verðlaun eins og gert er ráð fyrir í Íþróttanámsskrá ÍSÍ fyrir börn á þessum aldri.

Eins og áður kom fram er þessi starfsemi hluti af útbreiðslustarfi félagsins og hefur þetta reynst vel og skilað sér í auknum iðkendafjölda. Faglærðir þjálfarar standa fyrir æfingunum og séð er til þess að börnin fái bestu kennslu sem völ er á.