Félagið
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur er að Gnoðarvogi 1. Félagið á tvö íþróttahús, einkum ætluð fyrir badminton. Í húsunum eru samtals 17 badmintonvellir.
Badmintoníþróttin er ein vinsælasta almenningsíþróttin í dag. Fólk á öllum aldri hittist einu sinni í viku eða oftar, og keppir eða leikur sér í badminton. Sumir æfa mörgum sinnum í viku hverri og keppa til árangurs í mótum, en flestir stunda badminton sér til ánægju og heilsuræktar. Fólk finnur sér andstæðinga við sitt hæfi, og best er ef menn eru sem jafnastir á vellinum.
Unglingatímar eru flesta daga vikunnar. Þjálfarar eru Jóhann Kjartansson, Árni Þór Hallgrímsson, Jónas Huang og Magnús Ingi Helgson. Tímarnir eru ætlaðir börnum og unglingum frá 9 ára aldri.
Byrjendanámskeið eru á mánudagskvöldum kl. 21.50. Kennari er Kjartan Nielsen. Hér er um að ræða 6 vikna námskeið, þar sem undirstöður badmintoníþróttarinnar eru kenndar.
Nýir félagar í TBR eiga einnig kost á ókeypis kennslu í badminton á miðvikudagskvöldum. Þar er Kjartan Nielsen einnig leiðbeinandi. Hér er upplagt tækifæri til þess að læra réttu handtökin strax í byrjun.
Kvennatímar eru á þriðjudags- og föstudagsmorgnum kl. 9.20-10.10. Jóhann Kjartansson er þjálfari. Á eftir kvennatímunum er boðið upp á molakaffi.
Borðtennisdeild Víkings hefur aðstöðu í TBR-húsum. Flest borðtennismótin eru haldin hér. |