Sumarskóli TBR
Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í yfir 20 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri.
Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna nemendum helstu grunnatriði badmintoníþróttarinnar, s.s. grip, uppgjöf og háhögg. Kennslan fer bæði fram á leikjaformi og í formi tækniæfinga og skiptist erfiðleikastig þeirra eftir aldri og getustigi þátttakenda. Einnig kynnast nemendur helstu leikreglum.
Við leggjum mikla áherslu á að námskeiðið sé fjölbreytt, spennandi og skemmtilegt og við nýtum okkar frábæra staðsetningu í Laugardalnum, auk þess að fara í stuttar ferðir með strætó út fyrir dalinn. Á hverju námskeiði er m.a. farið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, í sund í Laugardalnum, ratleik í Elliðaárdalnum, Nauthólsvík heimsótt o.s.frv.
Boðið verður upp á bæði heils- og hálfsdagsvistun, frá kl. 9–13 og 9–16. Möguleiki er á gæslu frá kl. 8–9 og frá kl. 16–17. Þá er boðið upp á léttan hádegisverð fyrir þau börn sem eru í heilsdagsvistun. Verð er 9.000 kr. fyrir 10 daga námskeið kl. 9–13 og 17.000 kr. fyrir námskeið kl. 9–16.

Þjálfarar eru m.a. Skúli Sigurðsson íþróttakennari, Broddi Kristjánsson íþróttakennari, Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari, Ragna Ingólfsdóttir leiðbeinandi o.fl. Öll börn í Sumarskólanum fá jafna viðurkenningu fyrir þátttöku og verðlaunapening eins og stefna ÍSÍ í þjálfun barna og unglinga segir til um.
Námskeið 1 / 11. júní–25. júní 10 daga námskeið (hefst á föstud.)
Námskeið 2 / 28. júní–9. júlí 10 daga námskeið
Námskeið 3 / 3. ágúst–16. ágúst 10 daga námskeið
Skráning hefst 10. maí í síma 581 2266
Nánari upplýsingar
s:581 2266
|