Aðalfundur TBR 2009
Aðalfundur TBR var haldinn í félagsheimli TBR þriðjudaginn 28. apríl sl. Sigríður Jónsdóttir var fundarstjóri og Birkir Steinn Erlingsson fundarritari. Vel var mætt á fundinn eða um 40 manns.
Á fundinum voru nokkur mál á dagskrá svo sem skýrsla stjórnar og reikningar félagsins sem var samþykkt samhljóða, árgjald næsta árs var ákveðið og svo var kosið í stjórn. Jóhannes Helgason var endurkjörinn formaður og með honum í stjórn sitja: Árni Þór Hallgrímsson, Guðmundur Adolfsson, Áslaug Jónsdóttir, Halldóra Elín Jóhannsdóttir og Þorbjörg Kristinsdóttir. Þá þurfti að kjósa nýjan fulltrúa ungu kynslóðar í stjórn. Þeir félagar sem sátu fundinn og eru á aldrinum 16 - 25 ára fengu að kjósa sér fulltrúa. Fyrir valinu varð Einar Óskarsson leikmaður í meistaraflokki félagsins.
Ragna Ingólfsdóttir nýtti tækifærið og færði TBR gjöf og þakkaði fyrir stuðninginn í gegnum árin og þá sérstaklega fyrir Ólympíuleikana í sumar.

|