frístundakort

rig

 

 

Byrjendanámskeið

Nú er í boði að skrá sig á byrjendanámskeið í badminton. Námskeiðið stendur í 6 vikur og hefst 16 mars nk. Kennt verður á mánudagsdkvöldum klukkan 21:50. Skráning fer fram í verslun TBR, í gegnum síma eða með tölvupósti á tbr@tbr.is og er öllum frjálst að skrá sig. Verð er kr. 6.500.

Mikil eftirspurn er eftir byrjendanámskeiðum í TBR og ljóst að færri komast að en vilja. Námskeiðin henta vel þeim sem eru nýir í félaginu og vilja fá kennslu í undirstöðuatriðum íþróttarinnar, sem og þeim sem stunda íþróttina reglulega en hafa aldrei fengið kennslu.

Kennari er Kjartan Nielsen en hann sér einnig um Trimm-tíma félagsins.