Ferðin til Kína gekk vel
Íslenska liðið sem keppti á HM í Kína á dögunum er komið til landsins eftir vel heppnaða ferð. Liðið endaði í 5. sæti í sinni deild eftir að hafa unnið Portúgal, Sri Lanka og Mongólíu en tapað fyrir Litháen. Íslenska liðið endaði þar með í 3. sæti í sínum riðli en Ísland, Portúgal og Litháen sátu öll jöfn í 1. - 3. sæti í riðlinum og þurfti að reikna út hverjir væru með besta hlutfallið í lotum talið. Eftir að búið var að telja þá varð röðin sú að Litháar sigruðu riðilinn, Portúgalir í öðru sæti og íslenska liðið því miður í 3. sæti. Það þýddi að Ísland spilaði um 5. sætið við Suður-Afríku.
Ísland - Portúgal 3 - 2
Fyrsti leikur liðsins var gegn Portúgal og var það leikur sem fyrirfram var talinn gríðarlega erfitt verkefni fyrir íslenska liðið. Fyrsti leikur var einliðaleikur karla en þar mætti Magnús Ingi Helgason hinum unga Pedro Martins. Pedro þessi er einn af bestu unglingaspilurum Evrópu. Magnús gerði sér lítið fyrir og lagði Pedro 19-21 21-16 og 21-18. Sannarlega glæsileg úrslit hjá Magnúsi í leik sem tók 39 mínútur. Í einliðaleik kvenna var Tinna Helgadóttir á móti Telmu Santos. Telma sem helgina áður hafði sigrað á opna Portúgalska meistaramótinu mætti grimm til leiks og sigraði nokkuð örugglega 21-15 21-14 og staðan í landsleiknum orðin 1 - 1. Næsti leikur var tvíliðaleikur karla. Fyrir Ísland kepptu Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi en þeir hafa átt gríðarlega gott tímabil í vetur og sigruðu meðal annars á SOTX Cyprus International og HEAD Slovak International í vetur. Þeir mættu Fernando Silva og Hugo Rodriguez og sigruðu 21-13 21-18 og íslenska liðið aftur komið með forystu. Þá mættu til leiks Snjólaug Jóhannsdóttir og Karitas Ósk Ólafsdóttir í tvíliðaleik kvenna. Þær mættu Ana Moura og Helena Pastena. Stelpurnar okkar náðu sér ekki vel á strik og töpuðu 15-21 13-21 og staðan orðin 2 - 2 og tvenndarleikurinn því úrslitaleikur. Fyrir Ísland spiluðu Helgi Jóhannesson og Tinna Helgadóttir og fyrir Portúgal Hugo Rodriguez og Telma Santos. Helgi og Tinna byrjuðu betur og unnu fyrstu lotuna 21-17. Portúgalirnir tóku þá við sér og unnu næstu lotu 21-13 og þurfti því að leika oddalotu. Helgi og Tinna mættu grimm í oddalotuna og unnu 21-18 og lönduðu því sigri fyrir íslenska liðið.

Magnús Ingi í einliðaleiknum
Ísland - Litháen 2 - 3
Næsti leikur liðsins var gegn Litháen en Litháar voru fyrir mótið taldir vera með sterkasta liðið í riðlinum. Leikurinn hófst á tvenndarleik og þar voru mætt aftur til leiks Helgi og Tinna nú gegn Klaudijus Kasinskis og Kristinu Dovidaityte. Helgi og Tinna sigruðu örugglega 21-15 21-14. Góður leikur til að byrja á fyrir íslenska liðið. Næstur var Atli Jóhannesson í einliðaleik karla en hann fékk hið erfiða verkefni að spila við Kestutis Navickas en hann er númer 44 á heimslista BWF og hefur staðið sig gríðarlega vel á alþjóðlegum mótum undanfarin misseri. Atli stóð sig nokkuð vel þá sér í lagi í fyrri lotunni en tapaði þó 14-21 7-21. Í einliðaleik kvenna mætti Karitas Ósk Ólafsdóttir í sínum fyrsta einliðaleik fyrir landsliðið. Andstæðingurinn var Akvile Stapusaityte. Karitas stóð sig ágætlega en tapaði 21-10 21-10. Staðan orðin 2 - 1 fyrir Litháa og íslenska liðið komið með bakið upp að veggnum fyrir næstu tvo leiki. Helgi og Magnús voru næstir í tvíliðaleik karla. Fyrir Litháana spiluð Kestutis Navickas og Ramunas Stapusaitis. Helgi og Magnús voru frekar seinir í gang og töpuðu fyrstu lotu 21-23. Strákarnir náðu þó að hrista af sér slenið og sigruðu örugglega næstu tvær lotur 21-15 og 21-7 og jöfnuð því metin fyrir Ísland og staðan 2 - 2. Úrslitaleikurinn var því tvíliðaleikur kvenna. Fyrir Ísland léku Tinna Helgadóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir og fyrir Litháa Akvile Stapusaityte og Kristina Daovidaityte. Íslensku stelpurnar töpuðu leiknum sem þó var hörkuleikur en endaði 17-21 22-24 fyrir þær litháensku og landsleikurinn því miður tapaður 2 - 3.

Helgi og Magnús í tvíliðaleik gegn Litháen
Ísland - Sri Lanka 4 - 1
Daginn eftir var komið að Sri Lanka. Íslenska liðið þurfti að rífa sig upp eftir tap gærdagsins og komast á skrið aftur. Leikurinn hófst á einliðaleik karla. Magnús var þar aftur kominn eftir hlé gegn Litháen og sigraði 21-16 19-21 21-12. Góð byrjun fyrir íslenska liðið. Tinna Helgadóttir var næst í einliðaleik kvenna. Tinna lenti í smá erfiðleikum í fyrstu lotunni en lokaði henni þó 24-22. Seinni lotan var erfið fyrir Tinnu og hún tapaði 21-15. Í oddalotunni var Tinna þó ákveðnari og sigraði 21-7 og staðan orðin vænleg fyrir okkar fólk eða 2 - 0. Helgi og Magnús voru svo mættir í þriðja sinn í tvíliðaleik karla og sigruðu sína andstæðinga 21-19 og 21-10 og íslenska liðið komið í 3 - 0. Tvíliðaleikur kvenna var næstur og fyrir íslenska liðið spiluðu Snjólaug og Karitas en stelpurnar náðu sér engan veginn á strik og töpuðu 16-21 10-21. Tvenndarleikurinn var síðastur en Helgi og Tinna sigruðu hann 21-17 21-12 og íslenskur sigur 4 - 1.

Magnús Ingi í einliðaleik gegn Sri Lanka
Ísland - Mongólía 5 - 0
Síðasti leikurinn í riðlinum var gegn liði Mongólíu en Mongólarnir höfðu fram að þessu tapað öllum sínum leikjum 0 - 5 og einungis unnið sigur í einni lotu. Í ljósi þessrara úrslita var liðsuppstillingunni breytt töluvert. Leikurinn hófst á einliðaleik karla en þar var Helga Jóhannessyni stillt upp í fyrsta sinn. Helgi sigraði 21-11 21-19 og Ísland komið í 1 - 0. Karitas var næst í einliðaleik kvenna og sigraði 21-3 21-6. Í tvíliðaleik karla léku Magnús og Atli saman í fyrsta sinn í landsleik og sigruðu 21-18 21-7. Snjólaug og Karitas spiluðu svo tvíliðaleik kvenna og sigruðu 21-4 21-6. Tvenndarleikurinn var síðastur en þar spiluð saman Atli og Tinna og unnu örugglega 21-7 21-10. 5 - 0 fyrir Ísland.
Leikur um 5. sæti í 4. deild
Ísland - S-Afríka 3 - 0
Eins og áður hefur komið fram lenti íslenska liðið í 3. sæti í riðlinum á óhagstæðu lotuhlutfalli og spilaði um 5. sæti við lið S-Afríku sem lenti í sama sæti í hinum riðlinum í sömu deild. Leikurinn hófst á einliðaleik karla og þar var Magnús Ingi mættur og spilaði fínan leik og sigraði 21-15 19-21 21-14 og kom íslenska liðinu í 1 - 0. Tinna var næst í einliðaleik kvenna og sigraði 21-8 21-17. Ísland komið í 2 - 0 og tvíliðaleikur karla næstur. Helgi og Magnús sem fyrir leikinn höfðu verið nokkuð stöðugir og góðir ullu engum vonbrigðum og sigruðu 24-22 21-12 og íslenskur sigur í höfn. Þar sem í úrslitakeppni var komið þá var leik hætt um leið og annað liðið hafði sigrað 3 leiki og því ekki nauðsyn að spila næstu tvo.
Íslenska liðið hafði hér með lokið leik og gat eftir þetta notið þess að vera í Kína og fylgst með því sem eftir var af mótinu og þá sér í lagi í efstu deildinni þar sem barist var um heimsmeistaratitilinn sjálfan. Liðið gat séð báða undanúrslitaleikina á milli Kóreu og Indónesíu annars vegar og Kína og Malasíu hins vegar. Frábær upplifun fyrir krakkana og sjá og fylgjast með badmintonleikjum fyrir fullu íþróttahúsi með um 15000 áhorfendur í salnum.
|