Ýsan afhent á morgun
Landslið Íslands í badminton sem stefnir á ferð til Kína að keppa á HM í maí hefur staðið fyrir fjáröflun undanfarna daga. Krakkarnir tóku sig til og seldu ferska ýsu frá "Hafgæði". TBR-ingar tóku krökkunum svo sannarlega vel og hefur salan verið mjög góð og fært krakkana nær því að komast til Kína.

Á morgun fimmtudag verður fiskurinn afhentur hér í TBR-húsunum við Gnoðarvog milli klukkan 18:00 og 18:30. Við biðjum fólk um að mæta og sækja fiskinn sinn og þeir sem ekki voru búnir að greiða gangi frá því hið fyrsta.
|