frístundakort

rig

 

 

Grænlendingar í heimsókn í TBR

Hópur af grænlenskum spilurum kom í heimsókn í TBR í sumar og voru settar upp æfingabúðir með þeim ásamt keppnishópi unglinga frá TBR. Um var að ræða eina helgi frá föstudegi til sunnudags og æfðu krakkarnir einu sinni á dag auk þess sem sett voru upp mót bæði laugardag og sunnudag. Það var Helgi Jóhannesson sem stóð fyrir æfingunum.

grænlendingar og íslendingar

Eftir mót á sunnudeginum bauð TBR svo öllum í pizzuveislu og svo var verðlaunaafhending.

grænland sigurvegari

Krakkarnir skemmtu sér vel og mynduðust góð tengsl milli Íslendinganna og Grænlendinganna og höfðu grænlensku fararstjórarnir það á orði að okkar krakkar væru velkomnir til Grænlands ef áhugi væri fyrir.