frístundakort

rig

 

 

Styttist í Íslandsmót unglinga

Nú styttist óðfluga í Íslandsmót unglinga, en það mun fara fram í íþróttahúsinu við Varmá í Mosfellsbæ í samvinnu við badminton deild UMFA um næstu helgi, eða dagana 13. - 15. mars.

íslandsmót unglinga

Íslandsmótið er það mót sem allir vilja vinna og er það sem krakkarnir eru búnir að æfa fyrir í allan vetur. Það er því öruggt að hart verður barist í öllum greinum í öllum flokkum um næstu helgi.

Mótaskráin er komin á netið og af henni að dæma er mótið mjög stórt sér í lagi í yngri flokkunum.