TBR aldrei fengið jafn marga titla á Íslandsmóti unglinga
Íslandsmót unglinga var haldið í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ um helgina. Mótið var hið glæsilegasta í alla staði og eiga mótshaldarar hrós skilið fyrir gott skipulag, en það er einmitt það sem þarf í móti þar sem skráðir eru 264 keppendur og spilaðir 530 leikir.
TBR-ingar stóðu sig með prýði og er ljóst að við hjá TBR erum með góðan efnivið í höndunum og eigum bjarta framtíð í vændum. TBR vann alls 20 og hálfan titil á mótinu af 22 mögulegum.

Þess ber einnig að geta að 6 TBR-ingar urðu þrefaldir Íslandsmeistarar. En það voru: Sigríður Árnadóttir (U13), Margrét Jóhannsdóttir (U15), Gunnar Bjarki Björnsson (U15), Aron Ármann Jónsson (U17), Sunna Ösp Runólfsdóttir (U19) og Kári Gunnarsson (U19). Aldrei hafa jafn margir orðið þrefaldir Íslandsmeistarar á sama mótinu.

Úrslit urðu sem hér segir:
Einliðaleikur Snáðar (U11):
Davíð Bjarni Björnsson TBR sigraði Andra Árnason TBR
Einliðaleikur Snótir (U11):
Alda Karen Jónsdóttir ÍA sigraði Ingibjörgu Elínu Jónsdóttur ÍA
_______________________________________________________________
Einliðaleikur Hnokkar (U13):
Daníel Jóhannesson TBR sigraði Halldór Axel Axelsson ÍA
Einliðaleikur Tátur (U13):
Sigríður Árnadóttir sigraði Jónu Hjartardóttur TBR
Tvíliðaleikur Hnokkar (U13):
Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR sigruðu Daníel Jóhannesson og Óskar Jörgen Sandholt TBR.
Tvíliðaleikur Tátur (U13)
Jóna Hjartardóttir og Sigríður Árnadóttir sigruðu Hörpu Hilmisdóttur og Öldu Karen Jónsdóttur ÍA
Tvenndarleikur Hnokkar/Tátur (U13):
Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir sigruðu Halldór Axel Axelsson og Öldu Karen Jónsdóttur ÍA
_______________________________________________________________
Einliðaleikur Sveinar (U15):
Gunnar Bjarki Björnsson TBR sigraði Thomas Þór Thomsen TBR
Einliðaleikur Meyjar (U15):
Margrét Jóhannsdóttir TBR sigraði Söru Högnadóttur TBR
Tvíliðaleikur Sveinar (U15):
Gunnar Bjarki Björnsson og Thomas Þór Thomsen TBR sigruðu Sigurð Sverri Gunnarsson og Þorkel Inga Eriksson TBR
Tvíliðaleikur Meyjar (U15)
Margrét Jóhannsdóttir og Sara Högnadóttir TBR sigruðu Elsu Rún Brynjarsdóttur og Ivalu Birnu Falck-Petersen TBA
Tvenndarleikur Sveinar/Meyjar (U15):
Gunnar Bjarki Björnsson og Margrét Jóhannsdóttir TBR sigruðu Þorkel Inga Eriksson og Unni Björk Elíasdóttur TBR
________________________________________________________________
Einliðaleikur Drengir (U17):
Aron Ármann Jónsson TBR sigraði Jóhann Felix Jónsson TBR
Einliðaleikur Telpur (U17):
Rakel Jóhannesdóttir TBR sigraði Elínu Þóru Elíasdóttur TBR
Tvíliðaleikur Drengir (U17):
Aron Ármann Jónsson og Nökkvi Rúnarsson TBR sigruðu Kristinn Inga Guðjónsson og Ólaf Örn Guðmundsson BH
Tvíliðaleikur Telpur (U17):
Jóhanna Jóhannsdóttir og Sigrún María Valsdóttir TBR/BH sigruðu Elínu Þóru Elíasdóttur og Rakel Jóhannesdóttur TBR
Tvenndarleikur Drengir/Telpur (U17):
Aron Ármann Jónsson og Elín Þóra Elíasdóttir TBR sigruðu Nökkva Rúnarsson og Jóhönnu Jóhannsdóttur TBR
_______________________________________________________________
Einliðaleikur Piltar (U19):
Kári Gunnarsson TBR sigraði Egil Guðlaugsson ÍA
Einliðaleikur Stúlkur (U19):
Sunna Ösp Runólfsdóttir TBR sigraði Ástu Ægisdóttur TBR
Tvíliðaleikur Piltar (U19):
Kári Gunnarsson og Haukur Stefánsson TBR sigruðu Egil Guðlaugsson og Eirík Henn ÍA
Tvíliðaleikur Stúlkur (U19):
Sunna Ösp Runólfsdóttir og Berta Sandholt TBR sigruðu Ástu Ægisdóttur og Kristínu Sveinsdóttur TBR
Tvenndarleikur Piltar/Stúlkur
Kári Gunnarsson og Sunna Ösp Runólfsdóttir TBR sigruðu Kjartan Pálsson og Rakel Jóhannesdóttur TBR
________________________________________________________________
Eftir mótið bauð TBR svo bæði keppendum og foreldrum til pizzuveislu í félagsheimli TBR enda krakkarnir okkar búnir að vera glæsilegir fulltrúar félagsins bæði innan vallar sem utan alla helgina og sýndu enn einu sinni hversu glæsilegur hópur þetta er.
|