Kínaferð
Fyrirhuguð er ferð á heimsmeistaramót landsliða í Kína (Sudirman Cup) 10. - 17. maí.
Áætlarðu kostnaður á hvern leikmann er 210.000 og þarf hver leikmaður að standa straum af einum þriðja af þeim kostnaði.
Þess vegna hafa leikmenn ákveðið að vera eð fisksölu vikuna 9. - 16. mars og rennur allur ágóði til leikmanna.
Um er að ræða 5 kg pakka af fyrsta flokks, roðlausri og beinlausri ýsu frá "Hafgæði" sem verður afhent fersk í frauðplastkassa. Verð fyrir slíka pakkningu er 5.000 kr.-
Afhendingardagur verður fimmtudaginn 19. mars kl 18:00 í TBR húsunum við Gnoðarvog 1, en boðið verður upp á auka afhendingardag þann 30. apríl fyrir þá sem vilja kaupa 2 pakka og kjósa að fá afhent í tveimur hlutum.
Hægt er að skrá sig og greiða í afgreiðslunni í TBR og hægt er að greiða með korti. Einnig er hægt að skrá sig og greiða við afhendingu.
Þeir sem standa að sölunni eru: Magnús Ingi Helgason, Helgi Jóhannesson, Atli Jóhannesson, Tinna Helgadóttir, Snjólaug Jóhannsdóttir, Karitas Ósk Ólafsdóttir og Árni Þór Hallgrímsson
|