Landsliðið komið til Kína
Íslenska landsliðið í badminton er komið til Kína þar sem það mun taka þátt í Heimsmeistaramóti landsliða. Mótið fer fram í borginni Guangzhou en það er ein af stærstu borgum Kína. Í Guangzhou hafa verið haldin þó nokkur stórmót í badminton og var þetta sama mót haldið þar árið 2005. Á næsta ári verða svo Asíuleikarnir haldnir í Guangzhou og er það í stefnu yfirvalda í borginni að halda einn stóran íþróttaviðburð á ári.
Íslenska liðið lagði af stað snemma á sunnudagsmorguninn síðasta og flaug til London. Í London þurfti liðið svo að bíða í um 10 tíma þar til flugið til Hong Kong færi af stað. Íslensku krakkarnir nýttu þó tímann vel og fóru á helstu ferðamannastaði London ss. Big Ben, Buckhingham Palace og Trafalgar Square.

Stóri Ben í London
Þegar til Hong Kong var komið var reynt að berjast við syfju og þreytu því klukkan að staðartíma var um 17:00. Það þótti því skynsamlegt að reyna að hreyfa sig aðeins og fóru krakkarnir því í ræktina á hótelinu og eftir það var haldið út í leit að veitingastað. Það hafðist að lokum og eftir þó nokkurn tíma komust allir að niðurstöðu um hvað hver og einn vildi borða. Eftir matinn var svo haldið á Temple Street Market en það er kvöld markaður þar sem hægt er að kaupa alls kyns minjagripi og glysvörur. Sumir gerðu góð kaup og voru harðir í prúttinu.
Snemma daginn eftir var svo farið á æfingu aftur í tækjasalnum á hótelinu og efir það var slakað aðeins á í sólinni og hefðu sumir mátt bera aðeins meiri sólarvörn á sig. Fljótlega upp úr hádegi fór svo stærstur hluti liðsins af stað inn í miðbæ Hong Kong borgar til að skoða sig um og sjá borgina. Liðið hittist svo allt í bænum um kvöldmatarleitið og hófst þá mikil leit að veitingastað. Allir gátu svo sæst á ítalskan mat þetta kvöld. Eftir matinn var haldið upp í "The Peak" en það er útsýnispallur þar sem hægt er að sjá yfir alla Hong Kong borg og er einn vinsælasti ferðamannastaður Hong Kong.

Magnús Ingi og Atli á "The Peak" í bakgrunn sést svo upplýst Hong Kong borg
Eftir annasaman dag voru svo allir fegnir að komast loks aftur upp á hótel til að fara og hvíla sig því daginn eftir beið lestarferð til Guangzhou.
Þegar til Guangzhou var komið og liðið kom í komusalinn á lestarstöðinni beið þar móttökuhópur frá mótshöldurum sem kom þeim á hótelið. Á hótelinu beið svo móttökunefnd og formaður hennar bauð Árna Þór landsliðsþjálfara sérstaklega velkominn til Kína. Allir liðsmenn, sem og aðrir sem ferðast með liðinu fengu blómvönd að gjöf. Þegar búið var að innrita á hótelið var liðinu úthlutaður kínverskur sjálfboðaliði sem er liðinu innan handar allt mótið.

Árni Þór og sjálfboðaliðar, Tiffany sjálfboðaliði íslenska liðsins stendur Árna á vinstri hönd
Í morgun æfði liðið svo í æfingahöllinni en þar eru alls í kringum 50 badminton vellir þó að "aðeins" 12 hafi verið í notkun í morgun. Dagurinn fór svo í smá skoðunarferð um Guangzhou og sjálfboðaliði liðsins fór með það hvert sem það óskaði.
Liðið æfir aftur á morgun en þá í keppnishöllinni. Áframhald dagsins er óráðið en stefnt er að því að setja reglulega inn fréttir hér á tbr.is og fylgjast með gangi okkar fólks beint frá Kína.
|