Ungu stelpurnar slógu í gegn á Límtrésmótinu
Það má sannarlega segja að ungu stelpurnar í TBR hafi minnt rækilega á sig um helgina á Límtrésmóti KR sem fram fór í KR heimilinu um helgina.
Í einliðaleik kvenna í Meistaraflokki mættust í fyrstu umferð Rakel Jóhannesdóttir úr TBR, sem varð á dögunum Íslandsmeistari í U17, og Karitas Ósk Ólafsdóttir úr ÍA sem fyrir mótið var talin sigurstranglegust í kvennaflokki. Rakel gerði sér lítið fyrir og sló Karitas út úr keppninni með sigri 22-20 23-21. Hún hélt svo áfram og spilaði sig fram í úrslitaleikinn með sigri á Halldóru Elínu Jóhannsdóttur úr TBR 21-15 og 21-16.
Á hinum enda mótsins var Elín Þóra Elíasdóttir mætt til leiks, en hún byrjaði á því að leggja Þorbjörgu Kristinsdóttur að velli 21-9 21-6 og svo Snjólaugu Jóhannsdóttur i undanúrslitum 22-20 21-15. En Elín er einnig í U17 ára hópi TBR.
Það varð því þannig að Rakel og Elín skyldu mætast í úrslitum í Meistaraflokki en þetta var í annað sinn sem Rakel kemst í úrslit í einliðaleik en í fyrsta sinn sem Elín fer í úrslitaleikinn. Leikurinn endaði svo með sigri Rakelar 21-16 21-9. Nokkuð sannfærandi sigur ef litið er á tölurnar en í leiknum sjálfum var mikið spil og hörkuspil.

Glæsilegur árangur hjá stelpunum og greinilegt að þarna eru komnar stelpur sem ætla sér langt í íþróttinni og vert verður að fylgjast með í nánustu framtíð. Þessi úrslit bera sannarlega vott um það að einliðaleikur kvenna er galopinn í alla enda og ekki nema vika í Íslandsmót. Spennandi tímar framundan í einliðaleik kvenna.
Í einliðaleik karla sigraði Magnús Ingi Helgason nokkuð örugglega en hann lagði í undanúrslitum Atla Jóhannesson 21-17 21-17 og í úrslitaleiknum sigraði hann Helga Jóhannesson 25-23 21-10. Gott veganesti fyrir Magnús fyrir næstu helgi þegar Íslandsmótið fer fram.
í tvíliðaleik kvenna sigruðu svo systurnar Halldóra Elín og Snjólaug en þær lögðu í úrslitum Karitas Ósk Ólafsdóttur og Birgittu Rán Ásgeirsdóttur báðar úr ÍA í hörkuleik 21-17 12-21 22-20. Stelpurnar komu vel til baka í oddalotunni og var lokakaflinn hörkuspennandi en þá leiddu Skagastelpurnar 20-17. Systurnar börðust þó til síðasta dropa og uppskáru að lokum sigur.
Tvíliðaleikur karla var nokkuð eftir bókinni í þetta sinn. Í úrslitum mættust Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason annars vegar og Bjarki Stefánsson og Daníel Thomsen hins vegar. Leikurinn endaði með nokkuð sannfærandi sigri Helga og Magnúsar 21-8 21-15.
Tvenndarleikurinn var svo síðastur á dagskránni en þar sigruðu Helgi Jóhannesson og Elín Þóra Elíasdóttir þau Atla Jóhannesson og Snjólaugu Jóhannsdóttur 21-14 19-21 21-15 í hörkuleik sem bauð upp á gott badminton í alla staði en þessi tvö lið hafa barist hart í allan vetur og alltaf verið hörkuleikir.
|