frístundakort

rig

 

 

TBR býður nýjan framkvæmdastjóra BSÍ velkomna til starfa

Badmintonsamband Íslands hefur kunngjört á heimasíðu sinni að búið sé að ráða nýjan framkvæmdastjóra. Nýi framkvæmdastjórinn heitir Margrét Gunnarsdóttir og kemur fram í fréttatilkynningu BSÍ að hún sé menntaður viðskiptafræðingur og hafi lokið prófi frá Háskóla Íslands 1997.

TBR býður Margréti velkomna til starfa og óskar henni farsældar í nýju starfi. Einnig vonast TBR til að með tilkomu Margrétar muni samstarf TBR og BSÍ halda áfram að blómstra.