Styttist í Íslandsmót fullorðinna
Nú styttist óðfluga í Íslandsmót fullorðinna. Íslandsmótið er hápunktur keppnistímabilsins hjá keppnisfólkinu okkar. Undirbúningur hjá meistaraflokki er nú í hámarki og allir að leggja mikið á sig á lokakaflanum og reyna að nýta hvert einasta tækifæri til undirbúnings. Keppt verður í Meistaraflokki, A-flokki, B-flokki, Æðsta flokki (50+) og Heiðursflokki (60+).

Mótið verður haldið í Hafnarfirði í ár, nánar tiltekið í íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 27. - 29. mars. Mótið hefur verið haldið í TBR undanfarin ár en Badmintondeild Hafnafjarðar fagnar 50 ára afmæli í ár og sótti í því tilefni um að fá að halda Íslandsmótið í ár. Stefnt er að miklum breytingum á húsinu, en það þarf að mála veggina, leggja dúk á gólfin og mála fyrir glugga.
Opið er fyrir skráningu í alla flokka fram til 19. mars. TBR hvetur alla TBR-inga til að skrá sig og taka þátt í þessu skemmtilega móti.
|