frístundakort

rig

 

 

Fyrsta námskeið sumarsins gekk vel

Fyrsta námskeið Sumarskólans er ný afstaðið og gekk í alla staði vel. Á námskeiðinu voru um 50 börn á aldrinum 6 - 12 ára.

sumarskóli

Á námskeiðinu var farið í alls kyns leiki bæði á lóð TBR sem og í Laugardal. Um var að ræða alls kyns boltaleiki, svo sem fótbolta, körfubolta, skotbolta og margt fleira. Farið var í ratleik um laugardalinn og í sund í Laugardalslaug. Hópurinn gerði sér líka ferð í Elliðaárdal sem og á Miklatún. Í þessar lengri ferðir var farið með strætó. Einnig er TBR í samstarfi við Fjölgreinaskóla Ármanns/Þróttar og fáum við að heimsækja fimleikahúsið í Þróttaraheimilinu.

sumarskóli

Fyrir börnin sem voru allan daginn á námskeiðinu var eldaður matur í hádeginu og erum við hér í TBR svo lánsöm að hafa menntaðan kokk meðal starfsfólks. Hann hefur séð um eldamennskuna fyrir námskeiðin og starfsfólk í sumar.

sumarskóli

Síðasta daginn býður TBR börnunum svo í keilu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og þaðan er haldið í Nauthólsvík og grillaðar pylsur og börnin geta leikið sér þar bæði í heitum pottum sem og í sjónum.

sumarskóli