TBR fær styrki
TBR fékk á dögunum styrki frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Íþrótta og tómstundaráði Reykjavíkur. Þessir styrkir voru veittir til TBR fyrir kröftugt barna og unglingastarf en einnig var veittur styrkur til TBR vegna Íslandsmeistara. Það var Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari og Ólympíufari sem tók við styrkjunum fyrir hönd TBR við hátíðlega athöfn í Höfða.
Styrkurinn fyrir barna og unglingastarfið hljóðaði upp á 150.000.- kr og styrkurinn vegna Íslandsmeistara upp á 200.000.- kr. Heildarupphæð styrksins er því 350.000.- kr.
|