Tinna þrefaldur Íslandsmeistari
Meistaramót Íslands fór fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði um helgina. Mótið var hið glæsilegasta og bar hæst að Tinna Helgadóttir úr TBR sigraði í öllum greinum í meistaraflokki.
Úrslit í meistaraflokki byrjuðu á tvenndarleik. Þar léku til úrslita systkinin Magnús Ingi Helgason og Tinna Helgadóttir gegn gömlu brýnunum Brodda Kristjánssyni og Elsu Nielsen. Magnús og Tinna mættu gríðarlega ákveðin til leiks og sigruðu fyrstu lotuna 21-7. Lota tvö var örlítið meira spennandi þrátt fyrir að systkinin hefðu forystu nær alla lotuna en hún endaði með sigri Magnúsar og Tinnu 21-19. Magnús Ingi Helgason og Tinna Helgadóttir Íslandsmeistarar í tvenndarleik árið 2009.
Næst var það einliðaleikur karla, en þar mættust Helgi Jóhannesson úr TBR og Hugi Heimirsson einnig frá TBR. Hugi sem hefur æft og spilað í Svíþjóð nær alla sína ævi var nú kominn heim til að spila á Íslandsmóti í fyrsta sinn. Hann gerðisér lítið fyrir í undanúrslitunum og lagði Magnús Inga Helgason nokkuð óvænt.
Helgi byrjaði úrslitaleikinn töluvert betur og hafði yfirhöndina alla fyrstu lotuna og sigraði 21-10. Í upphafi annarar lotunnar stefndi allt á sama veg. Helgi hafði yfirhöndina og stjórnaði spilinu nánast hvar sem var á vellinum. Við stöðuna 15-12 fyrir Helga, tók Hugi við sér og skoraði 5 stig í röð og komst yfir 17-15. Hann komst þó ekki lengra því þá svaraði Helgi með 6 stigum í röð og kláraði leikinn 21-17. Helgi Jóhannesson varði því Íslandsmeistaratitilinn sinn og varð Íslandsmeistari í fjórða sinn á fimm árum.
Í einliðaleik kvenna var ljóst að krýndur yrði nýr Íslandsmeistari. Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari síðustu 6 ára var fjarri góðu gamni þar sem hún er enn ekki komin á skrið eftir aðgerð frá því í haust.
Baráttan stóð á milli Tinnu Helgadóttur úr TBR og Karitasar Óskar Ólafsdóttur úr ÍA. Þrátt fyrir töluvert spil og báðar lotur jafnar framan af þá sigldi Tinna fram úr í þeim báðum og landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í einliðaleik með sigri 21-14 21-12. Þetta var í þriðja sinn sem Tinna lék til úrslita í einliðaleik á Íslandsmóti en í fyrsta sinn sem Karitas komst í úrslitaleikinn.
Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason hafa verið ósigrandi í tvíliðaleik karla undanfarin ár og á því varð engin breyting í ár. Þeir félagar léku til úrslita gegn "ellismellunum" Brodda Kristjánssyni og Þorsteini Páli Hængssyni. Í fyrri lotunni stungu Helgi og Magnús af og leiddu með 6-7 stigum út alla lotuna og sigruðu 21-12. Broddi og Þorsteinn gáfust þó ekki upp og reyndu hvað þeir gátu að fylgja Helga og Magnúsi eftir í síðari lotunni en hún var jöfn framan af en Helgi og Magnús sýndu þá hvers þeir eru megnugir og sigruðu 21-15. Þetta var þriðja árið í röð sem Helgi og Magnús verða Íslandsmeistarar í tvíliðaleik.
Siðasti leikur dagsins var svo tvíliðaleikur kvenna. Þar var mætt í þriðja sinn Tinna Helgadóttir úr TBR nú með Erlu Björgu Hafsteinsdóttur úr BH. Þess má til gamans geta að Erla er fyrst allra leikmanna BH til að komast í úrslit í meistaraflokki á Íslandsmóti. Andstæðingar þeirra voru hinar gamalreyndu Elsa Nielsen og Vigdís Björk Ásgeirsdóttir.
Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Liðin skiptust á að hafa forystu og munurinn aldrei meiri en 3 stig. Eftir harða baráttu þá stóðu Tinna og Erla uppi sem sigurvegarar en leikurinn endaði 21-19 21-19. Tinna þar með orðin þreföld í fyrsta sinn og Erla fyrsti Íslandsmeistari BH frá upphafi.
Þess ber einnig að geta að fyrr um daginn voru leikin úrslit í öðrum flokkum.
Í A-flokki landaði TBR 2 titlum af 5. Í kvennaflokki sigraði Margrét Jóhannsdóttir úr TBR Maríu Árnadóttur úr TBR 21-14 21-18. Í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Ingólfur Ingólfsson og Sævar Ström úr TBR þá Andrés Andrésson og Sigurjón Jóhannsson úr UMFA 21-16 21-10. Í tvíliðaleik kvenna komust Berta Sandholt og Ylfa Rún Sigurðardóttir í úrslit en töpuðu.
Í B-flokki sigraði Snorri Tómasson úr TBR í einliðaleik en hann og Eyþór Andri Rúnarsson urðu að láta sér annað sætið nægja í tvíliðaleiknum. Í kvennaflokki komst Sigríður Árnadóttir úr TBR í úrslit bæði í einliðaleik og tvíliðaleik ásamt Jónu Hjartardóttur. Í tvenndarleiknum komust Þorkell Ingi Eriksson og Unnur Björk Elíasdóttir í úrslit en þeim tókst ekki að landa sigri.
|