frístundakort

rig

 

 

U19 landsliðið lagt af stað til Mílanó

Landslið Íslands skipað leikmönnum yngri en 19 ára lagði af stað til Mílanó í morgun. Í liðinu eru 6 TBR-ingar af 8 leikmönnum. Liðið mun keppa á Evrópumeistaramóti unglinga næstu daga.

Þeir TBR-ingar sem komust í liðið eru:

Elín Þóra Elíasdóttir
Jóhanna Jóhannsdóttir
Kári Gunnarsson
Kjartan Pálsson
Rakel Jóhannesdóttir
Sunna Ösp Runólfsdóttir

Keppnin hefst með liðakeppni og dróst íslenska liðið í riðil með Þjóðverjum, Eistum og Pólverjum. Þykir ljóst að íslenska liðið eigi erfitt verkefni fyrir hönudum enda um gríðarlega sterkan riðil að ræða. Bæði Þjóðverjar og Pólverjar þykja með bestu þjóðunum í Evrópu í dag.

Eftir liðakeppnina verður svo leikin einstaklingskeppni. Drátturinn fyrir mótið var birtur í dag og lítur hann ágætlega út fyrir íslensku leikmennina. Elín Þóra var þó hvað óheppnust en hún dróst gegn stelpu sem fyrir fram er talin ein af 16 bestu í mótinu.

stelpurnar
hér má sjá íslensku stelpurnar bregða á leik