Íslenska unglingalandsliðið hefur lokið keppni
Íslenska unglingalandsliðið í badminton hefur lokið keppni í liðakeppninni á EM unglinga sem fram fer í Mílanó. Krakkarnir léku gegn Pólverjum, Þjóðverjum og Eistum. Því miður tókst þeim ekki að landa sigri í landsleikjunum en unnu þó einstaka leiki.
Ísland - Pólland 1 - 4. Það var Rakel Jóhannesdóttir úr TBR sem sigraði sinn leik í einliðaleik kvenna.
Ísland - Þýskaland 0 - 5. Kári Gunnarsson úr TBR var næst því að sigra leik en hann tapaði 21 - 18 í oddalotu.
Ísland - Eistaland 2 - 3. Svekkjandi niðurstaða eftir annars góða frammistöðu. Kári Gunnarsson úr TBR sigraði sína leiki örugglega en hann spilaði bæði einliðaleikinn og tvíliðaleikinn ásamt Agli Guðlaugssyni úr ÍA.
Íslenska liðið endaði því í neðsta sæti í sínum riðli. Krakkarnir fá nú nokkra daga í hvíld á meðan liðakeppnin klárast. Eftir liðakeppnina hefst svo einstaklingskeppnin og þá fara krakkarnir á fulla ferð aftur.
|