frístundakort

rig

 

 

Uppskeruhátíð barna og unglinga í TBR

uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð barna og unglinga var haldin í Þróttheimum við Holtaveg síðast liðinn laugardag. TBR býður öllum börnum og unglingum sem æfa í TBR til pizzuveislu. Krakkarnir koma sjálf með skemmtiatriði og veittar eru viðurkenningar til þeirra sem skarað hafa fram úr á starfsárinu

uppskeruhátíð

uppskeruhátíð

Hátíðin heppnaðist í alla staði vel og voru krakkarnir ánægðir með útkomuna. Það er Árni Þór Hallgrímsson þjálfari í TBR sem hefur umsjón með hátíðinni. Hann hefur sér innan handar unglingaráð TBR.

verðlaunahafar

Þeir sem fengu verðlaun í ár eru frá vinstri:
Sigríður Árnadóttir, Daníel Jóhannesson, Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Bjarki Björnsson, Rakel Jóhannesdóttir, Nökkvi Rúnarsson, Sunna Ösp Runólfsdóttir og Kjartan Pálsson en hann vantar á myndina.

Verðlaunin eru veitt fyrir ástundun, framfarir, hegðun og mætingu.