28.04.2010
Aðalfundur TBR 2010
Aðalfundur TBR var haldinn þriðjudagskvöldið 27. apríl sl. Kosið var um formann eins og gert er ár hvert og var Jóhannes Helgason endurkjörinn enda einn í framboði. Einnig voru kosnir áfram í stjórn þeir Árni Þór Hallgrímsson og Guðmundur Adolfsson. Einar Óskarsson verður áfram fulltrúi ungu kynslóðarinnar.
Sigríður Jónsdóttir fyrrverandi formaður Badmintonsambands Íslands var kosin fundarstjóri og Jóhannes Helgason formaður TBR gerði grein fyrir skýrslu stjórnar. Sigfús Ægir Árnason framkvæmdastjóri félagsins gerði grein fyrir reikningum félagsins og lagði til óbreytt árgjald fyrir næsta ár. Allt var þetta samþykkt samhljóða.
Komið var með tillögur að bættri ímynd félagsins út á við og var þeim tillögum beint til nýrrar stjórnar fyrir næsta starfsár.
|