Áramótaæfingin
Áramótaæfing keppnishóps unglinga fór fram þann 30. des sl. Á þessari æfingu mæta krakkarnir í grímubúning og er skipt í lið og keppt í mismunandi greinum. Búið var að hylja netin frá gólfi og upp úr til að gera leikinn enn meira krefjandi og skemmtilegan fyrir krakkana. Keppt var í fótbolta og að sjálfsögðu var keppni um besta búninginn. Það var metþátttaka í ár eða 42 krakkar mættir og í fyrsta sinn sem yfir 40 krakkar mæta.


Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru krakkarnir í hinum glæsilegustu búningum. Spiderman lét sjá sig ásamt bleika pardusnum. Einnig mættu álfadrottningin og Rauðhetta.
Eftir íþróttaspriklið safnast krakkarnir svo saman í félagsheimilinu og gæða sér á jólagóðgæti sem þau sjálf koma með að heiman og þannig í sameiningu búa til jólahlaðborð með alls kyns smákökum, laufabrauði og þess háttar.

Að lokum kjósa krakkarnir svo sjálf besta búninginn. Hver krakki hefur 5 atkvæði og í ár var sigurvegari "Tómaturinn" Alda Karen Jónsdóttir.

Fleiri myndir koma inn á myndasíðuna fljótlega
|