Atli og Ragna sigurvegarar á Atlamóti ÍA
Atli Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir úr TBR sigruðu í einliðaleik á Atlamóti ÍA sem fram fór um síðustu helgi. Atli lagði Bjarka Stefánsson í úrslitaleik 21-18 18-21 21-11 en Ragna sigraði Snjólaugu Jóhannsdóttur 21-11 21-16.
Í tvíliðaleik karla léku til úrslita Arthúr Geir Jósefsson og Einar Óskarsson annars vegar og Njörður Ludvigsson og Ástvaldur Heiðarsson hins vegar, en þeir koma allir úr TBR. Einar og Arthúr mættu grimmir til leiks og sigruðu 21-11 21-14 og er þetta í fyrsta sinn sem þeir félagar vinna til gullverðlauna saman í tvíliðaleik í meistaraflokki.
Í kvennaflokki léku Ragna Ingólfsdóttir og Katrín Atladóttir báðar úr TBR gegn Karitas Ósk Ólafsdóttur og Birgittu Rán Ásgeirsdóttur úr ÍA til úrslita. Leikurinn var jafn og spennandi og endaði með sigri TBR-stúlknanna 21-15 18-21 21-11.
Til úrslita í tvenndarleik léku Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir gegn Arthúri Geir Jósefssyni og Halldóru Elínu Jóhannsdóttur. Þetta var hörkuleikur og gríðarlega hart barist. Atli og Snjólaug stóðu þó uppi sem sigurvegarar í lokin í leik sem endaði 22-20 24-22.
|