07.09.2009
Byrjendanámskeið í badminton að hefjast
Mikil eftirspurn hefur verið eftir byrjendanámskeiði í badminton nú í haust og hefur því verið ákveðið að byrja slíkt námskeið. Námskeiðið mun hefjast mánudaginn 21. september kl 21:50. Kennari á námskeiðinu er Kjartan Nielsen en hann hefur leiðbeint á þessum námskeiðum undanfarin ár. Námskeiðið stendur í 6 vikur og er kennt alla mánudaga kl 21:50 og kostar 6.700.- kr pr. mann. Skráning og greiðsla fer fram í afgreiðslu TBR eða í síma 581-2266
|