frístundakort

rig

 

 

25.01.2010

Góður árangur í Danmörku

Stór hópur frá TBR tók þátt í móti í Hróarskeldu í Danmörku um helgina. Árangur hópsins var góður í heildina og komust þó nokkrir í verðlaunasæti. Atli Jóhannesson sigraði í einliðaleik karla í B-flokki mótsins.

Daníel Thomsen og Bjarki Stefánsson komust í úrslit í tvíliðaleik karla í B-flokki en þurtu að láta í minni pokann í úrslitunum.

Snjólaug Jóhannsdóttir komst í undanúrslit í A-flokki mótsins. Þorbjörg Kristinsdóttir spilaði tvíliðaleik með dönskum samherja og komust þær í úrslitaleikinn í B-flokki

Í D-flokki komust þeir Ívar Oddsson og Sindri Jarlsson í úrslit í tvíliðaleik en þurftu að láta sér 2. sæti nægja.

Birkir Steinn Erlingsson komst í undanúrslit í einliðaleik í D-flokki.

Í heildina litið mjög góð ferð og voru þjálfarar og farastjórar ánægðir með frammistöðu hópsins.