frístundakort

rig

 

 

Metþátttaka í golfmótinu

Aldrei hafa fleiri tekið þátt í golfmóti badmintonmanna sem fram fór á golfvellinum á Akranesi laugardaginn 12. sept sl. Það er Árni Þór Hallgrímsson sem stendur á bak við golfmótið ár hvert og greinilegt að áhugi badmintonspilara á golfi hefur aukist ár frá ári. Alls luku 48 kylfingar keppni og þar af 11 úr kvennaflokki.

hópmynd

Keppt var í tveimur forgjafarflokkum í karlaflokki, 0 - 20 og 20 - 36, en aðeins var um einn forgjafarflokk að ræða í kvennaflokki. Úrslit urðu sem hér segir.

Í forgjafarflokki 0 - 20 karla:

Steinn Baugur

1. sæti með 38 punkta: Steinn Baugur Gunnarsson
2. sæti með 30 punkta: Atli Jóhannesson
3. sæti með 29 punkta: Jan Thomsen

Í forgjafarflokki 20 - 36 karla:

Jóhannes Þorkelsson

1. sæti með 40 punkta: Jóhannes Þorkelsson
2. sæti með 36 punkta: Ottó Guðjónsson
3. sæti með 35 punkta: Vilhjálmur Svan Jóhannsson

Í kvennaflokki

Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir

1. sæti með 31 punkt: Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
2. sæti með 30 punkta: Edda R Erlendsdóttir
3. sæti með 29 punkta: Hanna Lára Köhler

Einnig voru veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg sem og nándarverðlaun á tveimur par 3 holum.

Lengsta teighögg í karlaflokki

Steinn Baugur Gunnarsson á 11 braut

Lengsta teighögg í kvennaflokki

Helga Þórarinsdóttir á 7. braut

Nándarverðlaun

Á 3. braut: Sigríður María Jónsdóttir, 5,75 m frá holu
Á 18 braut: Steinn Baugur Gunnarsson, 2,35 m frá holu