frístundakort

rig

 

 

Gunnar Bjarki í 16 liða úrslit á EM U17

Gunnar Bjarki Björnsson úr TBR er kominn í 16 liða úrslit í einliðaleik á Evrópumeistaramóti U17 sem fram fer í Slóveníu. Gunnar Bjarki sat yfir í fyrstu umferð mótsins og sigraði síðan Filip Stojliljkovic frá Serbíu í annari umferð.

Í þriðju umferð átti Gunnar Bjarki svo að spila gegn Lucas Corvee frá Frakklandi sem fyrir mótið var talinn 3 - 4 sterkasti leikmaður mótsins. Eitthvað hefur þó komið upp á í leik Corvees í gær þar sem hann þurfti að gefa leikinn gegn Gunnari Bjarka.

Gunnar Bjarki leikur gegn Daniel van Hooijdonk frá Wales í næstu umferð en Daniel þessi er fyrirfram talinn einn af 16 bestu leikmönnum mótsins.

Það sem vekur athygli á árangri Gunnars Bjarka er það að þetta er Evrópumót fyrir leikmenn 17 ára og yngri en Gunnar Bjarki er einungis 15 ára gamall og má því taka þátt í þessu móti aftur þegar það verður haldið eftir 2 ár. Það verður því spennandi að fylgjast með árangri Gunnars Bjarka bæði síðar í dag og þegar fram líða stundir.

Hægt er að sjá öll úrslit úr liðakeppninni sem fram fór fyrir einstaklingskeppnina með því að smella hér.