Úr leik á Bitburger Open
Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir hafa lokið leik á Bitburger Open Grand Prix sem haldið er í Saarbrucken í Þýskalandi þessa vikuna.
Ragna tapaði í gær þriðjudag, fyrir Perrine Lebuhanic frá Frakklandi 17-21 17-21, í úrslitaleik um að komast inn í aðalmótið. Fyrr um daginn hafði Ragna lagt Dominka Koukalova frá Tékklandi 21-17 21-14. Ragna sagði eftir síðari leikinn að hún hefði verið nokkuð ánægð með spilamennskuna og það væri gott að vera komin af stað í einliðaleiknum aftur.
Helgi þurfti ekki að fara í undankeppnina í einliðaleiknum en hefði getað verið heppnari með andstæðing. Helgi dróst gegn Jan Ö Jörgensen frá Danmörku sem fyrir mótið er talinn næst sterkasti leikmaður mótsins og er eins og staðan er í dag númer 13 á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins.
Úrslit leiksins urðu 15-21 11-21 þeim danska í vil. Helgi sagðist þó hafa verið ánægður með spilamennskuna og þá sér í lagi fyrri lotuna en þar fylgdust þeir Helgi og Jan að upp í 14-14 en þá gaf Helgi örlítið eftir og lotan endaði eins og áður sagði 15-21.
Helgi og Ragna keppa svo aftur á alþjóðlegu móti á Kýpur dagana 8. - 11. október nk.
|