Helgi og Ragna á ferð og flugi
Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir eru nú stödd í Saarbrucken í Þýskalandi þar sem þau taka þátt í Bitburger Grand Prix. Helgi og Ragna tóku þátt í YONEX Czech International um síðustu helgi og framundan eru mót á Kýpur og í Hollandi.
í Tékklandi lenti Ragna í því að komast ekki að í einliðaleik sökum mikils fjölda þátttakenda og þar sem Ragna hefur ekki keppt á alþjóðavetvangi í rúmt ár þá hafði hún misst stöðu sína á heimslistanum og lenti því aftast í röðinni.
Helgi komst í aðra umferð í undankeppninni en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Daniel Grassmuck frá Austurríki í þremur lotum.
Í tvenndarleiknum töpuðu Helgi og Ragna í fyrstu umferð i undankeppninni fyrir Milan Ludik og Kristinu Ludikovu í þremur lotum.
Nú þegar þessi frétt er skrifuð voru Helgi og Ragna að tapa tvenndarleik í Þýskalandi fyrir Andreas Heinz og Fabiane Deprez 19-21 og 16-21.
Ragna spilar svo einliðaleik í undankeppninni á eftir gegn Dominika Koukalova frá Tékklandi. Leikurinn hefst kl 13:40 að staðartíma en það er kl. 11:40 að íslenskum tíma.
Helgi þarf ekki að spila í undakeppninni spilar einliðaleik á morgun gegn Jan Ö Jörgensen frá Danmörku |