Yonex Dutch Open Grand Prix hefst í dag
Yonex Dutch Open Grand Prix hefst í dag í Almere í Hollandi. Meðal keppenda eru Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir. Ragna spilar í undankeppninni í dag auk þess sem þau leika saman í tvenndarleik í undankeppninni. Helgi slapp við undankeppnina og leikur á morgun í einliðaleik.
Ragna leikur gegn Josephine Wentholt frá Hollandi í fyrstu umferð undankeppninnar. Ekki er vitað mikið um þá hollensku enda er hún ekki skráð á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins. Það þýðir að hún hefur ekki náð að spila á tveimur alþjóðamótum á síðast liðnu ári. Leikurinn hefst kl 14:20 að staðartíma eða kl 12:20 að íslenskum tíma.
Helgi og Ragna leika svo saman í tvenndarleik kl 16:00 að staðartíma eða kl 14:00 að íslenskum tíma. Þeirra bíður leikur gegn Jurgen Wouters og Eefjke Muskens frá Hollandi.
|