frístundakort

rig

 

 

Í undanúrslit á Kýpur

Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir eru komin í undanúrslit í tvenndarleik á SOTX Cyprus International sem fram fer í Nicosia nú um helgina. Helgi og Ragna sátu hjá í fyrstu umferð og léku svo í gær gegn kýpversku pari og sigruðu til að tryggja sig áfram í 8-liða úrslitin. Nú í morgun léku Helgi og Ragna gegn pari frá Wales, Joe Morgan og Kerry-Ann Sheppard.

Morgan og Sheppard, sem fyrir mótið voru talin þriðja sterkasta lið mótsins og eru númer 70 á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins, byrjuðu betur og voru yfir 11-7 í hléi á fyrstu lotu. Lengra komust þau þó ekki því þá bættu Íslendingarnir í og sigruðu lotuna 21-15. Í lotu tvö fylgdust liðin að og var staðan 11-10 fyrir Morgan og Sheppard í hléi. Eftir hléið gáfu Helgi og Ragna aðeins eftir og lentu undir 18-12. Þau gáfust þó ekki upp og löguðu stöðuna og komust í 18-19 og 19-20 áður en Walesverjarnir kláruðu lotuna 21-19. Strax í upphafi þriðju lotu var ljóst hvert stefndi. Helgi og Ragna tóku forystu og héldu henni út lotuna og kláruðu þar með leikinn 21-14 og tryggðu sér þannig þátttökurétt í undanúrslitum mótsins.

Í næsta leik mæta Helgi og Ragna þeim Henry Tam og Donna Halliday frá Nýja Sjálandi. Tam og Halliday eru fyrir mótið talin næst sterkasta parið og eru númer 59 á heimslistanum.