frístundakort

rig

 

 

Ragna með tvenn gullverðlaun á Iceland Int.

Ragna Ingólfsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði í einliðaleik og tvíliðaleik ásamt Snjólaugu Jóhannsdóttur á Iceland International 2009 sem fram fór í TBR um síðustu helgi. Ragna sem hefur hægt og rólega verið að komast af stað aftur eftir að hafa slitð krossband fyrir um 2 árum er því ósigruð á þessu móti frá því 2005.

Ragna spilaði gegn Camillu Overgaard frá Danmörku í úrslitum og sigraði í oddalotu 21-15. Áður á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Ragna lagt bæði kínverska og aðra danska stelpu.

Í einliðaleik karla komust þeir Kári Gunnarsson og Róbert Þór Henn lengst íslensku strákanna eða í aðra umferð. Kári lagði ítalskan strák í fyrstu umferð en Róbert sigraði Tómas Guðmundsson.

Eins og áður kom fram sigraði Ragna ásamt Snjólaugu Jóhannsdóttur í tvíliðaleik kvenna. Þær sigruðu Brynju Pétursdóttur og Erlu Hafsteinsdóttur, örugglega í tveimur lotum, í úrslitaleik.

Í tvíliðaleik karla áttu Íslendingar 4 pör í 8-liða úrslitum, því miður komst ekkert þeirra áfram í undanúrslitin. Þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason komust þó næst því en þeir töpuðu í oddalotu gegn René Lindskow og Anders Skaarup Rasmussen frá Danmörku sem svo sigruðu mótið

Magnús Ingi og Elín Þóra Elíasdóttir komust svo lengst Íslendinganna í tvenndarleik eða í undanúrslit. Þau þurftu þó að láta í minni pokann gegn Theis Christiansen og Joan Christiansen í tveimur lotum. Theis og Joan unnu svo úrslitaleikinn.