Yfirburðir á Íslandsmóti unglinga
TBR bar höfuð og herðar yfir önnur félög á Íslandsmóti unglinga sem fram fór á Akranesi um helgina. Alls fékk TBR 20 Íslandsmeistaratitla af 22 mögulegum.

Jóhannes Helgason formaður TBR ásamt Íslandsmeisturunum
Íslandsmótið sem er hápunktur tímabilsins hjá flestum unglingaspilurum félagsins fór vel fram og var hið glæsilegasta í alla staði. Mótið sem er í umsjá Badmintonsambands Íslands var stórt og mikið og um 500 leikir leiknir á 7 völlum. Keppni hófst á föstudaginn og lauk um miðjan dag á sunnudag.
Það fer hvergi á milli mála að TBR var sigurvegari helgarinnar og sigraði nánast í öllum flokkum og greinum. Allir leikmenn félagsins sem skráðir voru til leiks mættu og þurfti félagið ekki að boða forföll í einn einasta leik sem er frábært sé tekið mið af því að félagið átti hátt í 100 keppendur í mótinu. Leikmenn félagsins eiga hrós skilið fyrir prúðmannlega framkomu bæði innan vallar sem utan og voru til fyrirmyndar í alla staði.
Úrslit urðu sem hér segir:
Snáðar (U11):
Einliðaleikur
1. Andri Snær Axelsson ÍA
2. Bjarni Guðmann Jónsson UMSB
Snótir (U11):
Einliðaleikur
1. Andrea Nilsdóttir TBR
2. Erna Katrín Pétursdóttir TBR

Hnokkar (U13):
Einliðaleikur
1. Davíð Bjarni Björnsson TBR
2. Kristófer Darri Finnsson TBR

Tvíliðaleikur
1. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson TBR
2. Sindri Máni Ívarsson og Vignir Haraldsson TBR
Tátur (U13):
Einliðaleikur
1. Alda Karen Jónsdóttir TBR
2. Lína Dóra Hannesdóttir TBR

Tvíliðaleikur
1. Alda Karen Jónsdóttir og Margrét Nilsdóttir TBR
2. Kristjana María Steingrímsdóttir og Lína Dóra Hannesdóttir TBR
Hnokkar/Tátur (U13)
Tvenndarleikur
1. Davíð Bjarni Björnsson og Alda Karen Jónsdóttir TBR
2. Pálmi Guðfinnsson og Kristjana María Steingrímsdóttir TBR
__________________________________________________________________
Sveinar (U15):
Einliðaleikur
1. Gunnar Bjarki Björnsson TBR
2. Daníel Jóhannesson TBR

Tvíliðaleikur
1. Daníel Jóhannesson og Eiður Ísak Broddason TBR
2. Sigurður Sverrir Gunnarsson og Stefán Þór Bogason TBR
Meyjar (U15):
Einliðaleikur
1. Margrét Jóhannsdóttir TBR
2. Sara Högnadóttir TBR
Tvíliðaleikur
1. Margrét Jóhannsdóttir og Sara Högnadóttir TBR
2. Jóna Hjartardóttir og Sigríður Árnadóttir TBR

Sveinar/Meyjar (U15):
Tvenndarleikur
1. Gunnar Bjarki Björnsson og Margrét Jóhannsdóttir TBR
2. Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR
__________________________________________________________________
Drengir (U17):
Einliðaleikur
1. Kristinn Ingi Guðjónsson BH
2. Ólafur Örn Guðmundsson BH
Tvíliðaleikur
1. Gunnar Bjarki Björnsson og Thomas Þór Thomsen TBR
2. Jóhannes Þorkelsson og Steinn Þorkelsson ÍA

Telpur (U17):
Einliðaleikur
1. María Árnadóttir TBR
2. Hulda Lilja Hannesdóttir TBR

Tvíliðaleikur
1. Elisabeth Christensen og María Árnadóttir TBR
2. Elsa Rún Brynjarsdóttir og Ivalou Birna Falck-Pedersen TBA
Drengir/Telpur (U17):
Tvenndarleikur
1. Thomas Þór Thomsen og María Árnadóttir TBR
2. Jóhannes Þorkelsson og Ivalou Birna Falck-Pedersen ÍA og TBA
__________________________________________________________________
Piltar (U19):
Einliðaleikur
1. Kári Gunnarsson TBR
2. Egill Guðvarður Guðlaugsson ÍA

Tvíliðaleikur
1. Kári Gunnarsson og Haukur Stefánsson TBR
2. Jónas Baldursson og Kjartan Pálsson TBR
Stúlkur (U19):
Einliðaleikur
1. Elín Þóra Elíasdóttir TBR
2. Sunna Ösp Runólfsdóttir TBR
Tvíliðaleikur
1. Jóhanna Jóhannsdóttir og Sunna Ösp Runólfsdóttir TBR
2. Elín Þóra Elíasdóttir og Rakel Jóhannesdóttir TBR

Piltar/Stúlkur (U19):
Tvenndarleikur
1. Kári Gunnarsson og Jóhanna Jóhannsdóttir TBR
2. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Karitas Eva Jónsdóttir ÍA
__________________________________________________________________
Þegar uppi var staðið voru 6 leikmenn sem náðu þeim frábæra árangri að verða þrefaldir Íslandsmeistarar, þe. að sigra í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik. Það voru þau: Alda Karen Jónsdóttir (U13), Davíð Bjarni Björnsson (U13), Margrét Jóhannsdóttir (U15), Gunnar Bjarki Björnsson (U15/U17), María Árnadóttir (U17) og Kári Gunnarsson (U19). Frábær árangur hjá krökkunum og forvitnilegt verður að fylgjast með afrekum þeirra í framtíðinni.

Eftir mótið var svo leikmönnum TBR og foreldrum þeirra boðið í pizzuveislu í félagsheimili TBR.
|