frístundakort

rig

 

 

Helgi varði titilinn, Ragna komin aftur.

Meistaramót Íslands fór fram í TBR-húsunum dagana 26.-28. mars sl. Mótið er hápunktur tímabilsins hjá öllum bestu badmintonspilurum landsins. Í ár var mótið óvenju spennandi og óvenju mikið var um óvænt úrslit.

Í einliðaleik karla léku til úrslita, Íslandsmeistari síðasta árs, Helgi Jóhannesson úr TBR og Kári Gunnarsson líka úr TBR. Kári sem aðeins er 19 ára gamall, er fæddur og uppalinn í Danmörku og hefur æft þar og keppt frá unga aldri. Segja má að það hafi verið töluvert óvænt að Kári skyldi ná í úrslitaleikinn. Hann sigraði á leiðinni bæði þá Magnús Inga Helgason og Atla Jóhannesson, sem fyrir mótið þóttu líklegastir til að berjast um titilinn ásamt Helga.

Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi allan tímann og var nánast jafnt á öllum tölum allan leikinn. Helgi leiddi þó mest allan leikinn þrátt fyrir að ná aldrei að hrista Kára almenninlega af sér. Leikurinn endaði 21-19 21-19 Helga í vil og Helgi Jóhannesson því Íslandsmeistari í einliðaleik karla í fimmta sinn á undanförnum sex árum. Helgi vann jafnframt Íslandsbikarinn til eignar enda búinn að vinna hann fimm sinnum og einnig þrisvar sinnum í röð.

Helgi og Kári
Helgi Jóhannesson og Kári Gunnarsson

Fátt óvænt gerðist í einliðaleik kvenna. Til úrslita léku Íslandsmeistari síðasta árs, Tinna Helgadóttir og sexfaldur Íslandsmeistari Ragna Ingólfsdóttir. Eins og flestum er kunnugt leikur Tinna með úrvalsdeildarliði Greve í Danmörku sem rétt í þessu er að berjast í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar. Ragna hins vegar er tiltölulega ný komin aftur af stað eftir krossbandaaðgerð.

Leikurinn var jafn framan af en Ragna þó alltaf skrefinu á undan. Eftir leikhléið í fyrstu lotu tók Ragna svo kipp og stakk af. Tinna barðist þó vel og snéri stöðunni úr 20-11 í 20-16 áður en Rögnu tókst að klára lotuna. Í annarri lotu hrundi svo botninn úr spilinu hjá Tinnu og Ragna hélt sínu striki. Allt gekk upp, boltarnir klesstir á línurnar og netspilið hárfínt. Það fór svo að Ragna sigraði lotu tvö 21-3 og gat þar með fagnað sínum 7. Íslandsmeistaratitli í einliðaleik.

Ragna og Tinna
Ragna Ingólfsdóttir og Tinna Helgadóttir

Í tvíliðaleik karla voru mættir Íslandsmeistarar síðasta árs, þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason báðir úr TBR. Þeir léku gegn gömlu kempunum Brodda Kristjánssyni og Þorsteini Páli Hængssyni einnig úr TBR. Helgi og Magnús gáfu þó ekkert eftir og þegar þeim tókst að keyra upp hraðann þá var erfitt fyrir þá eldri að fylgja með. Leikurinn þróaðist þó þannig að jafnt var á með liðunum fram að leikhléi en svo bættu þeir yngri í og kláruðu leikinn. Helgi og Magnús Ingi því Íslandsmeistarar í tvíliðaleik karla 4. árið í röð. Leikurinn endaði 21-12 21-12.

Helgi, Magnús Ingi, Broddi og Þorsteinn Páll
Helgi, Magnús Ingi, Broddi og Þorsteinn Páll

Tvíliðaleikur kvenna var mest spennandi úrslitaleikurinn á mótinu enda eini leikurinn þar sem þurfti oddalotu til að finna sigurvegara. Til úrslita léku þær Ragna Ingólfsdóttir og Katrín Atladóttir gegn Snjólaugu Jóhannsdóttur og Tinnu Helgadóttur en þær koma allar úr TBR. Ragna og Katrín byrjuðu betur og höfðu forystu nánast alla fyrstu lotuna. Snjólaug og Tinna gáfust þó ekki upp og börðust en svo fór að Ragna og Katrín sigruðu í fyrstu lotu 23-21. Í næstu lotu snérust hlutverkin við. Snjólaug og Tinna voru í bílstjórasætinu og meðan hinar kepptust við að halda í við þær. Lotan endaði með sigri þeirra Snjólaugar og Tinnu 21-19. Í oddalotunni var þó aldrei spurning hverjir myndu standa uppi sem sigurvegarar. Ragna og Katrín léku við hvern sinn fingur og vörnin þeirra var sterkari en sókn andstæðinganna. Þær gátu því fagnað í lokin eftir að að hafa sigrað oddalotuna 21-6.

Ragna, Katrín, Snjólaug og Tinna
Ragna, Katrín, Snjólaug og Tinna

Tvenndarleikurinn, sem reyndar var fyrsti úrslitaleikurinn sem leikinn var, var á milli þeirra Magnúsar Inga Helgsonar og Tinnu Helgadóttur annars vegar og Arthúrs Geirs Jósefssonar og Halldóru Elínar Jóhannsdóttur hins vegar. Fátt koma á óvart við það að Magnús og Tinna skyldu ná í úrslitaleikinn enda Íslandsmeistarar undanfarinna tveggja ára. Arthúr Geir og Halldóra Elín sigruðu í undanúrslitum þau Atla Jóhannesson og Snjólaugu Jóhannsdóttur nokkuð óvænt, en Atli og Snjólaug hafa verið sigursæl á mótum hér heima í vetur. Þess má til gamans geta að þetta var fyrsti úrslitaleikur Arthúrs á Íslandsmóti. Magnús Ingi og Tinna voru þó of stór munnbiti fyrir þau Arthúr og Halldóru og endaði leikurinn 21-16 21-6 og Magnús Ingi og Tinna því Íslandsmeistarar í tvenndarleik í þriðja sinni í röð og í fjórða sinn alls, en þau sigruðu einnig 2005.

Tinna, Magnús Ingi, Arthúr Geir og Halldóra Elín
Tinna, Magnús Ingi, Arthúr Geir og Halldóra Elín