08.12.2009
Jólahlaðborð TBR 2009
Á hverju ári býður TBR stjórn, starfsfólki, endurskoðendum og unglingaráði og mökum þeirra til jólahlaðborðs. Þessi árlegi viðburður var haldinn laugardaginn 5. des sl. Að vanda var mikið glens og mikið gaman, stofnaður var kór, Frostrósir TBR voru stofnaðar og Tenórunum þremur fjölgaði í sex.
Veislan Veislueldhús sá um matinn og var hann hinn glæsilegasti. Í boði var hefðbundinn jólahlaðborðsmatur svo sem síld og rúgbrauð, graflax og sósa, hangikjöt og uppstúf og svona mætti lengi telja.

Matarborðið
Broddi Kristjánsson var sérstakur heiðursgestur enda ekki á hverju ári sem félagið eignast heimsmeistara, en eins og mörgum er kunnt varð Broddi heimsmeistari öldunga í flokki 50 ára og yngri. Að þessu tilefni ákvað TBR að heiðra Brodda og fékk hann sérstaka gjöf frá félaginu.

Broddi
Eftir matinn voru svo frekari skemmtiatriði á dagskrá. Unglingaráðið ver fengið til að syngja "Til Hamingju Ísland" eftir hina umdeildu Silvíu Night. Til aðstoðar var Sigfús Ægir framkvæmdastjóri félagsins en hlutverk hans var að leiða dansinn.

Unglingaráðið og Sigfús
Skemmtunin hélt svo áfram langt fram eftir kvöldi við dans og söng. Hápunktur jólahlaðborðs TBR er þó yfirleitt leikritið sem er skipulagt af Sigfúsi Ægi. Hann fær þá einhverja vel valda einstaklinga sem þó eru grunlausir þegar þeir mæta á svæðið til að klæða sig upp í alls kyns "múnderingar" og leika í umræddu leikriti. Í ár var leikritið um geiturnar þrjár og tröllið á dagskrá.

Kiðakið, Papa geit Sigfús, Tröllið og Mama Babuska
Stuðið hélt svo áfram fram eftir nóttu við undirspil og söng þeirra Jóhannesar Helgasonar formanns TBR og Jóhanns Kjartanssonar yfirþjálfara TBR. Yngri kynslóðin tíndist þó fyrr úr húsi en sú eldri enda flest allir í prófum um þessar mundir.
|