frístundakort

rig

 

 

Úrslit úr Jólamóti unglinga

Jólamót unglinga fór fram þann 19. desember sl. Á mótinu var keppt í öllum flokkum en aðeins spilaður einliðaleikur. Mótið var opið öllum leikmönnum úr félögum sem eiga aðild að Badmintonsambandi Íslands.

Úrslit urðu sem hér segir:

Hnokkar:
Kristófer Darri Finnsson úr TBR sigraði Davíð Bjarna Björnsson einnig úr TBR 21-15 21-12

Tátur:
Alda Karen Jónsdóttir úr TBR sigraði Línu Dóru Hannesdóttur einnig úr TBR 21-14 21-17

Sveinar: Eiður Ísak Broddason TBR sigraði Eyþór Andra Rúnarsson sem gaf úrslitaleikinn vegna meiðsla

Meyjar: Sigríður Árnadóttir úr TBR sigraði Sædísi Björk Jónsdóttur 21-5 21-12

Drengir: Gunnar Bjarki Björnsson úr TBR sigraði Ólaf Guðmundsson úr BH 21-18 19-21 21-11

Telpur: María Árnadóttir úr TBR sigraði Söru Högnadóttur úr TBR 21-15 21-19

Piltar: Egill Guðlaugsson úr ÍA sigraði Jónas Baldursson úr TBR 21-7 21-18

Stúlkur: Rakel Jóhannesdóttir sigraði en í stúlknaflokki var spilaður riðill vegna dræmrar þátttöku. Í öðru sæti varð Berta Sandholt úr TBR