Meistaramót TBR - úrslit
Tinna Helgadóttir var sigurvegari Meistaramóts TBR sem fram fór um helgina. Tinna sigraði þrefalt í mótinu eða í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik. Tinna sem búsett er í Danmörku og æfir þar og keppir með danska meistaraliðinu Greve kom til landsins yfir hátíðarnar og tók í leiðinni þátt í mótinu.
Í einliðaleik kvenna lék Tinna gegn Rakel Jóhannesdóttur úr TBR og sigraði nokkuð örugglega 21-13 21-13. En leikurinn spilaðist eins og við var að búast, þær fylgdust að framan af en þegar leið á seig Tinna fram úr og kláraði leikinn.

Tinna og Rakel
Í einliðaleik karla léku til úrslita þeir Helgi Jóhannesson úr TBR og Rasmus Mangor frá Danmörku. En Rasmus var sér sérstakur gestur mótsins í boði TBR. Í fyrstu lotu sigraði Helgi nokkuð örugglega eftir að hafa haft yfirhöndina alla lotunua, 21-15. Í lotu tvö mætti Rasmus ákveðinn til leiks og Helgi að sama skapi slakaði of mikið á. Rasmus vann lotuna 21-9. Í oddalotunni fylgdust þeir að framan af en undir lokin var það Helgi sem spilaði betur og sigraði 21-16.

Helgi og Rasmus
Í tvíliðaleik kvenna voru mættar aftur þær Tinna og Rakel, en ú sem samherjar. Rakel sem venjulega spilar með Elínu Þóru Elíasdóttur spilaði í þessu móti með Tinnu vegna veikinda Elínar. Í úrslitaleiknum mættu þær þeim Brynju Pétursdóttur og Erlu Hafsteinsdóttur. Rakel og Tinna höfðu töluverða yfirburði og sigruðu 21-14 21-7.

Tinna, Rakel, Erla og Bryjna
Í tvíliðaleik karla var gamla kempan Broddi Kristjánsson mættur til leiks með Rasmusi Mangor. Þeir léku í úrslitum gegn ungu strákunum Atla Jóhannessyni og Kára Gunnarssyni. Leikurinn var jafn og spennandi en þó þurftu þeir yngri að láta í minni pokann gegn þeim eldri. Leikurinn endaði 21-18 21-19 fyrir þá Brodda og Rasmus.

Broddi, Rasmus og Atli. Á myndina vantar Kára
Seinasti úrslitaleikurinn var tvenndarleikurinn. Þar mættust Magnús Ingi Helgason og Tinna Helgadóttir annars vegar og Rasmus Mangor og Hrefna Rós Matthíasdóttir hins vegar. Þau Rasmus og Hrefna áttu lítið í systkinin Magnús Inga og Tinnu sem unnu leikinn 21-11 21-11.

Tinna, Magnús, Rasmus og Hrefna
Einnig var keppt í A-flokki og B-flokki á mótinu. Sigurvegarar urðu sem hér segir:
A-flokkur karla einliðaleikur:
1. sæti: Haukur Stefánsson TBR
2. sæti: Reynir Guðmundsson KR
A-flokkur kvenna einliðaleikur:
1. sæti: Margrét Jóhannsdóttir TBR
2. sæti: Sara Högnadóttir TBR
A-flokkur karla tvíliðaleikur:
1. sæti: Jónas Baldursson og Kjartan Pálsson TBR
2. sæti: Andrés Andrésson og Sigurjón Jóhannsson UMFA
A-flokkur kvenna tvíliðaleikur:
1. sæti: Margrét Jóhannsdóttir og Sara Högnadóttir TBR
2. sæti: María Árnadóttir og Elisabeth Christensen TBR
A-flokkur tvenndarleikur:
1. sæti: Sindri Jarlsson og Dagný Ágústsdóttir UMFA
2. sæti: Kjartan Pálsson og Margrét Jóhannsdóttir TBR
B-flokkur karla einliðaleikur:
1. sæti: Guðni Agnar Ágústsson TBR
2. sæti: Brynjar Geir Sigurðsson BH
B-flokkur kvenna einliðaleikur:
1. sæti: Hulda Lilja Hannesdóttir TBR
2. sæti. Írena Jónsdóttir ÍA
B-flokkur karla tvíliðaleikur:
1. sæti: Gunnar Örn Ingólfsson og Ólafur Þór Guðjónsson TBR
2. sæti: Eiður Ísak Broddason og Daníel Jóhannesson TBR
B-flokkur kvenna tvíliðaleikur:
1. sæti: Alexandra Ýr Stefánsdóttir og Írena Jónsdóttir ÍA
2. sæti: Jóna Kristín Hjartardóttir og Sigríður Árnadóttir TBR
B-flokkur tvenndarleikur:
1. sæti: Snorri Hreggviðsson og Heiðdís Snorradóttir TBR/UMFA
2. sæti: Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir TBR
Myndir frá verðlaunaafhendingu má finna á myndasíðu félagsins von bráðar. |