Meistaramót TBR 2010
Meistaramót TBR verður haldið dagana 2. og 3. janúar nk. Keppt verður í Meistara- A- og B-flokki. "Útlendingarnir" okkar verða með í mótinu, þ.e.a.s. þeir Íslendingar sem búsettir eru erlendis en koma heim yfir hátíðarnar.
Í einliðaleik karla má búast við harðri keppni, en þar munu væntanlega fara fremstir í flokki þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason báðir úr TBR. Magnús er búsettur í Danmörku um þessar mundir þar sem hann æfir og keppir. Helgi hefur verið á faraldsfæti í vetur og keppt mikið erlendis en ekki tekið þátt í mörgum mótum hér heima. Þeir Helgi og Magnús þurfa þó að spila af fullum krafti því ungu strákarnir, td. Atli Jóhannesson og Kári Gunnarsson, munu ekki gefa neitt eftir. En Kári er einnig búsettur í Danmörku. En auk þeirra verður danskur gestur á mótinu, Rasmus Mangor Andersen.
Óvíst er hvort Ragna Ingólfsdóttir verði meðal keppenda á mótinu en eins og kunnugt er fór Ragna í speglun á hné strax eftir Iceland International mótið í nóvember. Hún byrjaði þó fljótt að æfa eftir speglunina en ekki er vitað hvort hnéið sé tilbúið undir átök starx í upphafi janúars. Tinna Helgadóttir Íslandsmeistari, sem er búsett í Danmörku og æfir og keppir þar, verður einnig meðal þátttakenda á mótinu en hún hefur verið að gera það gott með liði sínu Greve.
Mótið hefst sem fyrr segir 2. janúar kl. 10:00 og hvetjum við alla TBR-inga sem ekki taka þátt í mótinu til að koma og fylgjast með spennandi badmintonkeppni eins og hún gerist best á Íslandi.

|