frístundakort

rig

 

 

Helgi úr leik í Noregi

Helgi Jóhannesson Íslandsmeistari í einliðaleik karla er úr leik á opna norska meistaramótinu sem fram fer í Osló þessa dagana. Helgi spilaði í undankeppninni í gær og tapaði úrslitaleik um að komast inn í aðalmótið. Leikinn lék hann gegn Jim Ronny Andersen frá Noregi.

Jim Ronny þessi er gamall og reyndur spilari sem spilaði m.a. á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004 og hefur best verið í kringum 50 á heimslista BWF.

Helgi náði sér ekki á strik í leiknum og tapaði 10-21 19-21.