frístundakort

rig

 

 

18.01.2010

RIG - opnunarhátíð, úrslit og lokahátíð

Reykjavík International var sett með pompi og prakt í innilauginni í Laugardalslaug eins og venjan er. Opnunarhátíðin er alltaf sýning af öllum íþróttagreinum hátíðarinnar. Í ár spiluðu krakkarnir á plönkum og lentu svo í stríði við spjótkastara sem köstuðu spjótum á meðan badmintonspilararnir skutu í áttina að þeim badmintonkúlum.

RIG-Opnun
María Árnadóttir spilar badminton í Laugardalslauginni

Margrét Jóhannsdóttir var sigurvegari mótsins en hún sigraði þrefalt. Margrét sem er í U-15 sigraði í, öllum greinum, einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í U-17. Til úrslita í einliðaleik lék Margrét gegn Maríu Árnadóttur og sigraði nokkuð örugglega í tveimur lotum. Í tvíliðaleiknum lék Margrét ásamt Söru Högnadóttur, sem einnig er í U-15. Þær stöllur spiluðu við Maríu Árnadóttur og Elisabeth Christensen og sigruðu í tveimur lotum. Í tvenndarleiknum spilaði Margrét ásamt Gunnari Bjarka Björnssyni, sem einnig er úr U-15. Þau lögðu af velli í úrslitum þau Kristinn Inga Guðjónsson úr BH og Elisabeth Christensen úr TBR.

Margrét þreföld
Margrét Jóhannsdóttir sigraði þrefalt þrátt fyrir að hafa spilað upp fyrir sig í öllum greinum

Í U-19 sem jafnframt er elsti flokkurinn voru erlendir gestir skráðir til leiks. Þeim tókst þó ekki að landa sigri í einliðaleiknum þar sem Kári Gunnarsson og Rakel Jóhannesdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar. Kári og Rakel, sem á dögunum voru valin í A-landslið Íslands í fyrsta sinn og fara með liðinu til Póllands í næsta mánuði, voru einnig heiðruð á lokahátíð RIG sem fram fór á Broadway í gær sunnudag. Kári sigraði Egil Guðlaugsson í úrslitum en Rakel lék gegn Sunnu Ösp Runólfsdóttur. Bæði sigruðu þau nokkuð örugglega. Í tvíliðaleik pilta stóðu erlendu leikmennirnir undir væntingum og sigruðu án þess að lenda í teljandi vandræðum. Þeir léku í úrslitum gegn Kjartani Pálssyni og Jónasi Baldurssyni. Í tvíliðaleik stúlkna sigruðu þær Elín Þóra Elíasdóttir og Rakel Jóhannesdóttir. Sænsku leikmennirnir voru svo sigurvegarar í tvenndarleiknum.

Rakel, Kári og Kjartan
Rakel og Kári ásamt Kjartani Gunnarssyni borgarfulltrúa

Um kvöldið var svo haldin glæsileg lokahátíð á Broadway með mat fyrir þá sem það kusu. Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í hverri íþróttagrein sem keppt í er í á Reykjavík International Games. Fyrir badminton fengu verðlaun þau Kári Gunnarsson og Rakel Jóhannesdóttir. Þegar leið á kvöldið mætti enginn annar en Páll Óskar Hjálmtýsson á sviðið við mikinn fögnuð gesta og var haldið ball fram eftir kvöldi.

Ballið
Páll Óskar hélt uppi stuðinu

Verið er að hlaða inn myndum frá opnunarhátíðinni, verðlaunaafhendingu og lokahátíð, myndirnar verður að finna á myndasíðu félagsins eða með því að smella hér þegar öllum myndum hefur verið hlaðið inn