01.03.2010
Atli sigraði þrefalt á Reykjavíkurmótinu.
Atli Jóhannesson úr TBR gerði sér lítið fyrir og sigraði þrefalt á Reykjavíkurmótinu sem fram fór í TBR nú um helgina. Atli sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik. Í kvennaflokki var Rakel Jóhannesdóttir sigursælust og sigraði í einliða- og tvílðaleik.
Í úrslitum í einliðaleik karla mætti Atli, Agli Guðlaugssyni frá ÍA. Egill komst óvænt í úrslit og er þetta í fyrsta sinn sem hann leikur til úrslita í einliðaleik í Meistaraflokki. Atli lét þetta þó ekki slá sig út af laginu og sigraði mjög örugglega 21-10 21-8 og sigraði þar með í mótinu á þess að tapa svo mikið sem einni lotu.

Atli Jóhannesson
Í einliðaleik kvenna mættust í úrslitum þær Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir báðar úr TBR. Það er alltaf von á hörkuleik þegar þessar tvær eigast við en um helgina sýndi Rakel klærnar og vann nokkuð örugglega 21-10 21-18. Þetta er aðeins í annað sinn sem Rakel sigrar í einliðaleik í Meistaraflokki.

Rakel og Snjólaug
Í tvíliðaleik karla voru skráðir saman þeir Atli Jóhannesson og Njörður Ludvigsson. Atli er einn af ungu strákunum á uppleið en Njörður hefur minnkað töluvert við sig og spilar núna með TBR-Öllurum. Þeir Atli og Njörður sigruðu þó mótið og lögðu í úrslitum þá Einar Óskarsson og Arthúr Geir Jósefsson. Leikurinn endaði 21-18 22-20.

Njörður, Atli, Einar og Arthúr
Í tvíliðaleik kvenna voru ungu stelpurnar í aðalhlutverki um helgina. Þær Rakel Jóhannesdóttir og Elín Þóra Elíasdóttir sigruðu í mótinu og lögðu í úrslitaleik þá Hönnu Maríu Guðbjartsdóttir og Þorbjörgu Kristinsdóttur. Leikurinn endaði 21-10 21-17. Þetta er fyrsti sigur þeirra í tvíliaðleik í Meistaraflokki.

Rakel, Elín Þóra, Hanna María og Þorbjörg
Í tvenndarleik mættust í úrslitum þau Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir annars vegar og Róbert Þór Henn og Karitas Ósk Ólafsdóttir hins vegar. Leikurinn var jafn og spennandi en endaði með sigri þeirra Atla og Snjólaugar 21-14 13-21 21-16, og Atli þar með búinn að sigra í öllum þremur greinunum í fyrsta sinn í Meistaraflokki.

Atli, Snjólaug, Róbert og Karitas
|