frístundakort

rig

 

 

Sveppi og Auddi í heimsókn.

TBR-ingurinn sem varð fyrir valinu til að keppa gegn Sveppa var Daníel Stefánsson, verslunarstjóri TBR. Daníel sem er 75 ára gamall, og hefur spilað badminton í yfir 40 ár, spilaði leik við Sveppa við mikinn fögnuð ungra badmintonspilara sem voru á æfingu á sama tíma.

auddiAuddi var á hliðarlínunni fyrir Sveppa

sveppiSveppi tók vel á því

Sveppi var fullur sjálfstrausts þegar hann mætti í TBR og ekki vantaði yfirlýsingarnar. ,,Ég tapa ekki fyrir gamalmenni" voru hans orð. Auddi hins vegar sagði krökkunum að hann vonaðist til að Sveppi myndi tapa svo að hægt væri að stríða Sveppa.

sveppi og dalli
Sveppi og Daníel voru mestu mátar eftir leikinn

Úrslit leiksins verða svo kunngjörð í þætti þeirra Audda og Sveppa föstudagskvöldið 15. janúar nk.