TBR-Opið 2009
TBR opið fór fram um helgina í TBR húsunum. Sigurvegari mótsins var tvímælalaust Ragna Ingólfsdóttir úr TBR en hún sigraði í öllum greinum í Meistaraflokki.

Katrín, Ragna og Karitas
Hún sigraði Snjólaugu Jóhannsdóttur úr TBR í einliðaleiknum 21-9 21-5, í tvíliðaleik sigraði hún ásamt Katrínu Atladóttur þær Birgittu Rán Ásgeirsdóttur og Karitas Ósk Ólafsdóttur úr ÍA 21-17 og 21-14. Ragna fullkomnaði svo þrennuna í tvenndarleiknum ásamt Daníel Thomsen. Þau sigruðu Atla Jóhannesson og Snjólaugu Jóhannsdóttur 21-17 21-13.

Ragna, Daníel, Snjólaug og Atli
Í einliðaleik karla sigraði Atli Jóhannesson úr TBR en hann lagði Arthúr Geir Jósefsson einnig úr TBR 21-14 21-15

Atli og Arthúr Geir
Í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Bjarki Stefánsson og Daníel Thomsen. En þeir lögðu Einar Óskarsson og Arthúr Geir Jósefsson í hörkuleik í úrslitum 21-19
18-21 21-19.

Bjarki, Daníel, Arthúr Geir og Einar
|