frístundakort

rig

 

 

Badminton á RIG

Unglingameistaramót TBR er hluti af Reykjavík International Games og hefur verið frá upphafi. Í ár verður engin undantekning þar á og er von á stóru móti þar sem keppt er í aldursflokkunum U-13, U-15, U-17 og U-19. Þátttaka erlendra keppenda verður í elsta flokknum og er von á 4 sænskum leikmönnum til landsins í tengslum við mótið. Sænsku krakkarnir koma öll frá Täby badminton club sem er eitt sterkasta félag Svíþjóðar.Um er að ræða sterka sænska spilara sem hafa verið að ná góðum úrslitum í alþjóðlegum unglingamótum í vetur.

Mótaskrá og niðurröðun leikja verður að finna á www.tbr.is í seinasta lagi á fimmtudaginn 13. janúar. Allir bestu unglingar landsins verða með í mótinu og því má búast við harðri keppni í öllum flokkum.

Mótið hefst á laugardaginn 15. janúar kl 10.00 og verður leikið fram í undanúrslit í öllum greinum í öllum flokkum og framhaldið á sunnudegi með keppni í undanúrslitum í einliðaleik. Leikið verður með hefðbundnu útsláttarfyrirkomulagi en þeir sem tapa fyrsta leik í einliðaleik fara í aukaflokk. Í U-19 flokknum verður þó leikið með riðlafyrirkomulagi í einliðaleik. Í tvíliða og tvenndarleik verður útsláttarfyrirkomulag í öllum flokkum.