21.05.2010
Vormót Trimmara 2010
Vormót Trimmara var haldið í TBR 9. maí sl. Ágætis þátttaka var í mótið og var keppt í 4 greinum, einliðaleik karla, tvíliðaleik karla, tvíliðaleik kvenna og tvenndarleik.
Í einliðaleik karla sigraði Snorri Hreggviðsson. Hann sigraði í úrslitaleik Egil Sigurðsson 25-23 15-21 21-17. Hörkuleikur hjá þeim Snorra og Agli.

Í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Þorvaldur Einarsson og Vilhjálmur Jónsson. Þeir lögðu í úrslitum þá Conor Byrne og Ómar Sigurbergsson 21-18 21-17.

Í tvíliðaleik kvenna sigruðu þær Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind Johansen. Í örðu sæti urðu þær Ásthildur Dóa Kristjánsdóttir og Sigrún Marteinsdóttir. Leikið var í riðli í tvíliðaleik kvenna og sigruðu þær Guðrún og Berglind báða leiki sína í tveimur lotum.

Í tvenndarleik sigruðu þau Conor Byrne og Guðrún Gunnarsdóttir þau Ómar Sigurbergsson og Ásthildi Dóu Kristjánsdóttur. Úrslitaleikurinn endaði 21-15 21-11.

Guðrún Gunnarsdóttir sigraði því tvöfalt á Vormóti trimmara 2010.
|