08.12.2010
B-mót unglinga, innanfélagsmót
B-mót unglinga, innanfélagsmót, var haldið í annað sinn fyrir skemmstu. Þátttaka var ágæt og þá sérstaklega í U13 og U15. Um það bil 40 krakkar tóku þátt í mótinu. Mikil eftirspurn hefur verið innan félagsins eftir B-móti fyrir unglingana en þeir sem æfa eingöngu með keppnishópi félagsins eru ekki gjaldgengir í mótið. Í mótinu var keppt í einliðaleik með riðlafyrirkomulagi þannig að allir fengu nokkra leiki.
Úrslit urðu sem hér segir.
Tátur (U13)
1. sæti: Kolka Heimisdóttir
2. sæti: Guðrún María Gunnarsdóttir

Kolka Heimisdóttir
Hnokkar (U13)
1. sæti: Atli Tómasson
2. sæti: Eysteinn Högnason

Eysteinn og Atli
Meyjar (U15)
1. sæti: Guðbjörg Ragna Vilhelmsdóttir
2. sæti: Margrét Gígja Hermannsdóttir

Guðbjörg Ragna og Margrét Gígja
Sveinar (U15)
1. sæti: Aron Óttarsson
2. sæti: Emil Gauti Friðriksson

Emil Gauti og Aron
Drengir/Piltar (U17/U19)
1. sæti: Valur Sigurmann Steindórsson
2. sæti: Sölvi Thoroddssen

Sölvi og Valur
|