frístundakort

rig

 

 

31.08.2010

Ragna á Bitburger Open Grand Prix

Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari og fremsta badmintonkona landsins er komin af stað á nýjan leik. Tímabilið er hafið og keppir hún nú á Bitburger Open Grand Prix sem fram fer í Saarbrucken í Þýskalandi.

Ragna hóf keppni í dag í undankeppni mótsins og stóð sig með glæsibrag. Í fyrsta leik sigraði Ragna þýsku stúlkuna Kim Buss 21-19 21-9. Í síðari leiknum lék Ragna gegn Skotanum Linda Sloan og sigraði 21-14 21-15. Með sigrunum spilaði Ragna sig inn í aðalkeppnina sem hefst á morgun, miðvikudag.

Í aðalkeppninni leikur Ragna gegn Jeanine Cicognini frá Sviss. Ragna og Cicognini þekkjast nokkuð vel og hafa áður tekið þátt í alþjóðlegum æfingabúðum saman.

Þess má einnig geta að á Helvetia Cup, EM B-þjóða, sem haldin var á Íslandi árið 2007 þá sigraði Ragna Cicognini nokkuð örugglega. Mikið vatn hefur þó runnið til sjávar síðan þá og má einnig geta þess að Cicognini er fyrirfram talin sú 7. sterkasta í einliðaleik kvenna á mótnu í Saarbrucken og er jafnframt númer 37 á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins. Ragna er sem stendur númer 125 á sama lista.