TBR í forvarnarstarfi
TBR hefur sett af stað svokallaðan Forvarnahóp. Hópurinn er fyrir leikmenn í U15-U19 sem hafa hugsað sér að neyta hvorki áfengis né tóbaks. Það er Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari kvenna sem heldur utan um hópinn, enda bindindismanneskja í einu og öllu.
Tilgangurinn með stofnun hópsins er að vekja athygli meðal unglinganna að neysla áfengis og tóbaks eigi enga samleið með íþróttum.
Farið er í helstu atriði andlega þáttarins, mataræði og mikilvægi markmiða, bæði lengri og skammtíma. Krökkunum er kennt að skipuleggja sig og æfa markvisst.
|