Fyrirtækjakeppni 2011
Fyrirtækjakeppni BSÍ var haldin 2. apríl sl. í TBR húsinu við Gnoðarvog. Mótið tókst vel og voru um 40 fyrirtæki skráð til keppni í tveimur flokkum. Mótið var leikið í gamla húsinu og skapaðist mjög skemmtileg stemming í kringum mótið þar sem hægt var að nýta félagsheimilið sem áhorfendastúku. Að þessu sinni hafði Badmintonsamband Íslands ákveðið að allur ágóði mótsins skyldi renna í sjóð íslenska A-landsliðsins sem tekur þátt á HM í Kína í maí.
Sigurvegarar í A-flokki voru GS Smiðir EHF en fyrir þá léku þeir Vignir Sigurðsson og Ingólfur Ingólfsson. Þeir léku til úrslita gegn Hótel Saga Pipar en það voru þeir Kristján Daníelsson og Valgeir Magnússon sem léku fyrir þá.

Ingólfur, Vignir, Valgeir og Kristján
Þeir sem töpuðu fyrsta leik í aðalflokki fóru svo í aukaflokk. Það fór svo í aukaflokki í A-flokki að Hvergi slf með Hrund Guðmundsdóttur og Birki Stein Erlingsson innanborðs sigruðu eftir hörkuúrslitaleik gegn Stórveldinu í vesturbænum (háskólaprent) en fyrir þau lékur þær Elín Þóra Elíasdóttir og Jóhanna Jóhannsdóttir.

Birkir Steinn, Hrund, Jóhanna og Elín Þóra
Í B-flokki í aðalflokki léku til úrslita fyrirtækin Ferli og VSÓ Ráðgjöf. Það fór svo að Ferli sigraði að lokum en fyrir þau léku mæðginin Guðrún Björk Gunnarsdóttir og Davíð Bjarni Björnsson. Fyrir VSÓ Ráðgjöf léku þeir Vilhjálmur Árni Ásgeirsson og Rúnar Óskarsson.

Rúnar, Guðrún Björk, Davíð Bjarni og Viljhjálmur Árni
Sigurvegarar í B-flokki í aukaflokki var lið Símans með þá Hallmund Albertsson og Hjalta Harðarson en þau sigruðu frændur sína úr fyrirtækinu Skipti en fyrir þau léku Ingibjörg Arnljótsdóttir og Héðinn Þorsteinsson.

Ingibjörg, Héðinn, Hjalti og Hallmundur
Fyrirtækin sem tóku þátt í keppninni voru eftirfarandi og þakkar badmintohreyfingin þeim kærlega fyrir stuðninginn og án þeirra væri ómögulegt fyrir A-landsliðið að komast á Heimsmeistaramótið.

|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |

Tannes EHF |

Tannsteini EHF |
 |
 |
|

Halli Gullsmiður |
|